Morgunn


Morgunn - 01.06.1967, Page 50

Morgunn - 01.06.1967, Page 50
44 MORGUNN ar. Mér fannst, að nú yrði hlegið að þeim, sem léti slíka ein- feldni heyrast á þessari vísinda og lærdómsins öld. En það virðist sem þetta komi að gagni, hlýjar hugsanir og fyrirbænir komi að gagni. Mér líður sjálfum betur, og það, sem að mér sækir, róast og hverfur smám saman. Mér finnst ég tala við það í huganum, og þá virðist það átta sig og jafna. Stundum finnst mér þetta löngu liðnar manneskj- ur, sem ég hafði engin kynni af. En þó hefur það komið fyrir, að þetta hefur reynzt erfitt. Einkum man ég eftir því í tvö skipti, að þetta olli mér mikl- um erfiðleikum. Fyrra sinnið var það kona, sem dó mjög snögglega úr óðatæringu á Vífilsstöðum, Hún var áður hraust og lífsglöð, átti ung börn, sem hún annaðist svo, að til fyrirmyndar var. Svo var einnig um heimili hennar. I óráðinu var hún alltaf með hugann hjá börnunum sínum. Svo var það eitt sinn, að ég lá vakandi í rúminu. Þá er er konan allt í einu komin inn í vitund mína, mjög æst. Hún virtist ekki vita, að hún væri dáin, og var að leita að börn- unum sínum. Ég reyndi að beita öllu viljaþreki og góðvild, reyndi að skýra hvernig högum hennar væri nú háttað, og hvað henni bæri að gera. Ég bað fyrir henni í huganum. Mér fannst hún róast, jafna sig, og skynja hugsanaflutn- inginn frá mér. Ég hef ekki orðið hennar var síðan. 1 hitt skiptið var það hálfsystir mín, sem fyrirfór sér í Hafnarfirði, fleygði sér í sjóinn. Hún var um tvítugt, og lífið var henni sú kvöl, að hún gat ekki borið það. Hún kom til mín í lifanda lífi nokkru áður. Hún virtist undir einhverjum annarlegum áhrifum, en ekki brjáluð. Ég var þá svo, að ég gat ekkert gert fyrir hana. Svo var það eitt sinn, löngu síðar, að ég lá vakandi í rúm- inu. Þá kom hún inn í vitund mína, bölvandi, ragnandi og grátandi. Það var óskaplega ömurlegt. Ég fann, að ég var að hverfa sjálfur, og veitti þó mótstöðu með öllum þeim mætti, sem mér var mögulegur. Ég beitti öllu hugarafli, for- tölum og fyrirbænum, sem mér var tiltækilegt. Þetta virtist
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.