Morgunn


Morgunn - 01.12.1973, Side 36

Morgunn - 01.12.1973, Side 36
114 MORGUNN Hann byrjaði það 25 ára gamall, en lauk því ekki fyrr en rétt fyrir dánardægur sitt, tæpum sextíu árum siðar. Það er því hvemig sem á það er litið sarmkallað lífsverk. Vitanlega var eins og kunnugt er margt annað skrifað jafnframt þessu stór- virki eins og hin frægu ljóð höfundarins bera vitm. Enginn má ætla mér þá dul, að ég hafi í hyggju að bera verk Jóhanns Sigurjónssonar beinlínis saman við þetta meistara- verk heimsbókmenntanna, þótt ég leyfi mér að minnast hér að- eins á Galdra-Loft aftur í þessu sambandi. Vonandi verður það ekki talin nein goðgá, þótt ég hér veki athygli á hinum áber- andi mismun örlaga Lofts annars vegar og Fásts hins vegar. Mig langar til þess í fyrsta lagi að benda á þennan mismun og síðan gera nokkra grein fyrir honum frá mínu sjónarmiði. Eins og við vitum eru vitfirring og dauði hlutskipti Lofts. Eins og Jóhann lýsir honum í leikritinu er það rökrétt niður- staða og dramatískt óhjákvæmileg. Hér að framan gat ég þess, að ég teldi að leikrit Göthes f jall- aði annars vegar um taumlausan metnað mannsins og girnd hans til ásta, auðs og valda, en hins vegar óslökkvandi þekk- ingarþorsta hans og þrá til þess að öðlast skilning á tilgangi og takmarki lífsins. Aðeins hið fyrrnefnda kemur fram í persónu Lofts. Hann segir að vísu að óskir sínar séu voldugar og tak- markalausar. En þær eru eingöngu neikvæ'Sar. Hann segir við Disu: „ . . . við lifum saman í góðu og illu, eins og okkar eigin andi blæs okkur í brjóst. Ég næ takmarka- lausu valdi. Ég get framlengt lífið. Og ég get breytt okkur í dýr og blóm. Ef þú óskar getum við lifað á meðan jörðin er til i liki manna, dýra og blóma . . .“ Þetta eru ekki óskir and- lega þroskaðs manns, heldur bamssálar. Og í vitfirringunni tekur hann hinzta skrefið: „Þú sem býrð í eilífa myrkrinu. Ég hrópa til þín í gegn um jörðina. Gef mér mátt þinn. Iklæð mig krafti þínum. Hreinsa af mér öll góðverk. Og ger hjarta mitt máttugt í hinu illa.“ Fást Göthes sekkur að vísu niður í undirdjúpin vegna eig- ingjamra óska sinna og rangrar beitingar valds þess, sem hon- um er fengið. En í honum býr einnig góðleikurinn og guðs-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.