Búfræðingurinn - 01.01.1941, Blaðsíða 54
50
BÚFRÆÐINGURINN
yfirlit um heildarhalla Iandsins, og ef við það álízt að fleiri leiðir
geti komið til greina, þá eru gerðar samanhurðarmælingar með
50—100 metra millibili, og eftir því, strax á staðnum, valið milli
þeirra slcurðstæða, er til greina geta komið.
Þegar sú ákvörðun er tekin, er skurðlinan lengdarmæld og
hæðarmœld og hæluð með 10—50 metra millibili. Ef hæðir, dældir
eða skorningar verða milli þessara mælipunkta, eru þeir staðir
merktir hælum og mældir líka. Sömuleiðis verður styttra milli
hæla, þar sem skurðlinan beygir.
Eftir mælingunni eru reiknaðir út kótar allra hinna hæluðu
XJunkta, sömuleiðis vatnsborðshæð og hotnhæð þess farvegar, er
skurður á að liggja til. Sömuleiðis sú hæð er vatnið í skurðinum má
hafa út frá þeim stöðum, þar sem aðrir skurðir eða farvegir liggja i
hann. Þá er teiknuð hliðmynd skurðlínunnar á millimetrapappír, á
þennan hátt er auðveldast að fá yfirlit um, hvernig bezt verður lögð
botnlína skurðsins. Botnkótar skurðsinstil endanna eru þá ákveðnir,
ef allur botnhalli skurðsins getur verið jafn, ella i öllum þeim punkt-
um línunnar, þar sem hotnhallinn breytir stefnu sinni. Mismunur
hverra tveggja botnkóta, er hafa óbrotna línu milli sin, er reiknaður
út og lækkun eða hækkun fundin eftir því með einíoldum hlutfalls-
útreikningi á hverju millibili milli hæla i skurðlínunni. Sé byrjað á
útreikningi á lægsta punkti í skurðlinu, er hækkuninni bætt við hæð
hotnkóta á endahæl línunnar og er þá fundinn botnkótinn á næsta
hæl ofan við. Mismunur botnkóta og á kóta jarðvegsyfirborðsins við
hælinn er sú dýpt, er skurðurinn hefir á viðkomandi stað.
Það er nauðsynlegt að mælt hæðasamband sé milli allra halla-
mældra skurðlína sama framræslusvæðis og fastir mælipunktar séu
hafðir vegna síðari mælihga, og eiga skurðlínurnar allar að vera
reiknaðar út í sama kótakerfi.
Útreikningur á breidd skurða að ofan, þverskurðarfleti mæli-
punklanna og rúmmáli, eftir að hliðflái og botnbreidd hafa verið
ákveðin, er auðveldur með þvi að nota neðangreindar líkingar.
B = d ■ 2 f + b
p __ B -|- b j
M = Fl +---a- • 1
B = Breidd skurðs að ofan í m.
d = Dýpt skurðsins í m.
f = Fláinn (sé flái 1:0,75 verður f 0,75 o. s. frv.).
b = Botnbreidd í m.
F = Þverskurðarflöturinn i m2.
M = Rúmmál milli mælipunkta 1 og 2 i ms.
1 = Lengd skurðlínu milli mæliijunkta 1 og 2.