Búfræðingurinn - 01.01.1941, Blaðsíða 93
BÚFRÆÐINGURINN
89
jökulánna. Þó bera þverár og bergvötn oft i vorleysingum föst efni
i eins ríkum mæli og jökulárnar. Samkvæmt rannsóknum er
fundið, að í vatni Þjórsár eru 100 kg af óuppleystum föstum efn-
um í hverjum 2500 m3 af vatni hennar. Vorið 1924 var þessu
vatni veitt á í 40 sólarhringa, og i áveituhólfin kom vatn, sem
svaraði 0555 m3 á ha, og ætti þvi hverjum ha að hafa borizt um
áveitutímann 2G2 kg af föstum efnum. Samkvæmt rannsóknum á
Hvítá eystra er framburður hennar ekki nema 27,5 kg i 2500 ma
af vatni hennar, þó er vitað, að sjálfflæði frá lienni bera meiri
árangur en frá Þjórsá, sem byggist á því, að framburður Hvítár
er fokjörð úr frjósömum jarðvegi, sem er að eyðast, en framburður
Þjórsár er af vikurkenndum uppruna og mikið af upplandi hennar
löngu blásnir sandar. Þá eru þekkt áhrif árflæðanna i Borgar-
firði frá Hvítá, í Vatnsdal frá Vatnsdalsánni, og Eyjafirði frá Eyja-
fjarðará. Aftur á móti virðist ekki, að áflæði frá Skjálfandafljóti
gefi sérslaklega góða raun, þó framburður af föstum efnum sé
mikill i því. Kemur svipuð aðstaða þar til greina eins og við
Þjórsá. Þvi miður eru engar ýtarlegar rannsóknir til um fram-
burð vatnsfalla hér á landi á ýmsum tímum árs af lifrænum og
ólífrænum föstum efnuin, en það virðist auðsælt, að áburðar-
áhrif áveituvatns séu mjög undir þvi komin, hve mikil þau eru
að magni og gæðum.
Erlendis eru til rannsóknir um þetta atriði og er talið, að ár-
legur framburður sé í:
Ganges
Po .. ..
Nil ....
Rhone .
Ilurance
42 mill. m3
40 — —
30 — —
21 — —
12 — —
í Durance, sem er þverá, er fellur í Rhone i Frakklandi, var í
hinum árlega frantburði
Iíöfnunarefni
Fosforsýra .
8640 tonn
17100 —
33840 —
80100 —
Kalí
Kalk
Svo tekin séu nærtækari dæmi til skýringar á þeim feikna efna-
flutningi, er vatnsföllin framkvæma, skal getið ennfremur norskra
rannsókna unt, hve mikið berst út i Þrándheimsfjörðinn árlega af
föstum efnum i vatni því, er til lians fellur.
Föst efni .......
Þar af lífræn efni
Köfnunarefni . . . .
7G4500 tonn
307000 —
10700 —