Búfræðingurinn - 01.01.1941, Blaðsíða 193
B U F R Æ Ð I N G U R I N N
187
skóla gefur út. Þessa daga hefir venjulega verið dansa'ð i 2 klukku-
líma á undan kvöldvökum.
SkemnUun var lialdin 1. desember í fyrravetur. Þá flutti Vigfús
Helgason kennari rœðu og skólapiltar sungu. Að því loknu var
stiginn dans fram eftir nóttu. En aðalskemmtun skólans, hið venju-
lega „Þorrablót“, var haldið í fyrravetur hinn 24. febrúar. Þá voru
ræður fluttar af tveimur skólapiltum eins og venja er til, þeim
Hermanni Guðmundssyni, Blesastöðum á Skeiðum, og Ragnari
Róbertssyni, Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði. Sjónleikur var
leikinn á þorrablótinu, leikfiini og glímur sýndar, og að því loknu
stiginn dans.
Fullveldisins var minnzt 1. desember s. 1. með ræðu, en ekki fór
fram nein skemmtun í þvi sambandi að þessu sinni.
íþróttir.
Hjaltadalur var snjóalítill í fyrra vetur. Skíðaferðir voru því
ineð minna móti, en skautaferðir nokkrar. Knattspyrna hefir verið
iðkuð þessi ár, ekki síður en að undanförnu. Hermann Þórarins-
son frá Hjaltabakka í Húnavatnssýslu dvaldi hér frá 1. febrúar og
fram yfir þorrablót. Leiðbeindi hann neinendum um knattspyrnu.
Þess má og geta, að knattspyrnukappleikir hafa verið háðir milli
Sauðárkróksbúa og Hólamanna.
Margir nemendur hafa iðkað glimur hér i skólanum bæði í fyrra-
vetur og nú í vetur. Er það nýbreytni frá því, sem verið liefir að
undanförnu. Skúli Þorleifsson frá Reykjavík dvaldi hér i fyrra frá
Í4. febrúar og fram í marz. Þjálfaði hann nemendur í glímum.
Þótti þeim allmikils um það vert og iðkuðu glímur kappsamlega.
Á fundi, er nokkrir nemendur héldu í sumar, bar Jón Guðna-
son, skólapiltur, fram tillögu um það, að nemendur gæfu skólanum
glimuskjöld. Var tillagan samþykkt. Létu nemendur Ríkharð Jóns-
son smíða skjöldinn og verður keppt um hann í fyrsta skipti nú i
vetur. Á skjöldinn er letrað: „Glímuskjöldur Hólaskóla, gefinn af
nemendum 1940.“
Tafl hefir verið iðkað meira þessi ár í skólanum. en áður.
Ferðalög.
Vorið 1939, sunnudaginn 24. maí, fóru skólapillar ásamt skóia-
stjórahjónunum og Jóni Jóhannssyni hilstjóra lil Drangeyjar. Björn
Jónsson bóndi á Bæ á Höfðaströnd var leiðsögu- og ferjumaður
frá Hol'sósi til eyjarinnar. Hann er manna kunnugastur í Drangey
og höfðu allir hin beztu nol af leiðsögu hans. Veður var fagurt
þennan dag og þótti ferðin hin ánægjulcgasta.
Verknámsferð var fariu þetta vor dagana frá 11. til 14. júní. Var