Búfræðingurinn - 01.01.1941, Blaðsíða 137
BÚFRÆÐINGURINN
131
Mjög skorti á, að jarðyrkjustörfin í gróðrarstöðinni full-
nægðu starfsþrá Sigurðar. Hóf hann því jarðyrkju heima á
Hólum. Hann lét girða gróðurblett allvíðlendan, og var þar
unnið að trjárækt, garðrækt og tilraunir gerðar með gras-
fræsáningu. En þær voru þá skammt á veg komnar hér á
landi. Skrúðgarður mikill var gerður heima við skólahúsið
og gróðursettar margskonar trjátegundir, auk blómjurta. Til-
raunir þessar hafa reynzt ágætlega og eru nú orðnar ómetan-
leg staðarprýði. Birki og reyniviðartré í garðinum eru sum
um 6 metrar að hæð.
Sigurður rak bú á Hólum frá því árið 1914 og þangað til
1920 að hann lét af skólastjórn og bústjórn og gerðist forseti
Búnaðarfélags íslands. Var hann liinn mesti skörungur um
hústjórn alla, og fór þá mikið orð af hverskonar rausn á
staðnum. Ekki mun þó búsýslan hafa orðið honum fésæl,
enda var hann aldrei mikill fjársöfnunarmaður. Mikið var
unnið að jarðabótum á skólasetrinu þessi ár. Margir af nem-
endum skólans nutu þá verklegrar kennslu á staðnum, vor
og haust. Auk þess dvöldu ýmsir þeirra þar um heyannir og
lærðu þá fjölbreyttari heyvinnustörf en kostur var á að
nema víðast annarsstaðar.
Mjög óx aðsókn skólans eftir að Sigurður tók við stjórn
hans, enda var hann hinn röggsamasti skólastjóri. Kennsla
hans var ljós og skipuleg og höfuðáherzla lögð á það, er
koma mátti að beinum notum. En sannfæringarkraftur
kennarans orkaði þó mest á áhrif þau, er nemendur urðu
fyrir.
Mikinn hug lagði Sigurður á að auka og bæta söfn skól-
ans, bæði bókasafnið og náttúrugripasafnið. Hvatti hann og
nemendur til þess að nota tómstundir sínar á sumrin við
söfnun jurta, steina og annara náttúrugripa. Urðu ýmsir til
að sinna því starfi. Skólanum hefir orðið mikill hagur að
mörgu því, er hann hlaut þá í þeim efnum.
Sigurður skildi það vel, að ekki dugði sköruleg skólastjórn
og miklar umbætur á staðnum, til þess að skólinn hefði þau
áhrif á búnaðarháttu og menningarlíf, sem nauðsynlegt var
að liann næði. Fyrir því fór hann árlega námsferðir með
nemendum sínum um nágrenni skólans. Á ferðum þessum
voru skoðaðir fagrir og frægir staðir, en þó var höfuð-
áherzlan lögð á það, að kynnast framkvæmdum og búnaðar-