Viðar - 01.01.1936, Page 195
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M.
181
kom út öðru hverju og var lesið á fundum. Félagið gekkst fyrir
samkomu 1. des. Sótti hana fjöldi manns og rann ágóðinn i
Áhaldakaupasjóð. Skemmtanir fyrir heimafólk voru haldnar hvert
laugardagskveld að jafnaði. Annanhvorn laugardag var ýmislegt
til skemmtunar auk dans. Aldarafmælis síra Matthíasar Jochums-
sonar, skálds, var minnzt með ræðuhöldum, upplestri og söng;
flutti Kristleifur Þorsteinsson, fræðjmaður á Stóra-Kroppi, aðal-
ræðuna. Auk Kristleifs heimsóttu nokkrir fleiri fyrirlesarar skól-
ann og fluttu eitt eða tvö erindi. Slíkir menn eru hér aufúsugestir.
Taflfélagið tók til starfa fyrri hluta vetrar, en frekar varð
dauft yfir starfsemi þess þegar á leið vetur. Hinsvegar iðkuðu
piltar knattspyrnu af miklu kappi dag hvern, þegar veður hamlaði
eigi. Eftirtektarvert er það, að ókleift virðist að vekja áhuga
ungra manna lengur fyrir glímu, og' höfum við þó góðan glímu-
kennara hér, þar sem íþróttakennarinn er. ■— Einu sinni var farið
í Surtshelli og tóku þátt í þeirri för 84, þar af tveir kennarar. Ek-
ið var að Kalmanstungu en gengið þaðan í hellinn og hann skoð-
aður ásamt Stefánshelli. Þótti sú ferð bæði lærdómsrík og' ánægju-
leg. Nokkrar styttri gönguferðir voru farnar um nágrennið.
Skautafæri var sjaldan, en skíðum varð aldrei komið við sakir
snjóleysis og má Norðlendingum þykja það furðulegt.
Matarfélag höfðu nemendur eins og áður og stjórnuðu því tveir
nemendur, en reikningshald annaðist Þorgils kennari. Fæði og
hreinlætisvörur kostuðu á dag fyrir pilta kr. 1.11, en kr. 0.92 fyrir
stúlkur. Ráðskona var Ragnheiður Teitsdóttir frá Víðidalstungu og
ber henni heiður fyrir starf sitt. — Nemendur þjónuðu sér að öllu
lcyti sjálfir. Þeir ræstu herbergi sín, kennslustofur og fimleikahús.
Þá gengu þeir um beina. og hjálpuðu til við uppþvott. Er nemönd-
um skipað í flokka til að annast þessi vinnubrögð, eru 4 saman í
borðstofu en 6 í þvottaflokki. —
Námsskeið í frjálsum íþróttum, leikfimi og sundi var haldið í
skólanum fyrir jól og sóttu það 14 nemendur. Kennarar þess voru
Kjartan Bergmann og Teitur Guðjónsson. Námsskeiðið stóð í þrjár
vikur. 1 maí og júní í vor voru hér tvö sundnámsskeið fyrir börn
og unglinga úr Reykholtsdal, Borgarnesi, Akranesi og Reykjavík.
Síðastliðið haust steypti Guðmundur Halldórsson, smiður frá
Neðranesi, stétt meðfram skólahúsinu á þrjá vegu, skólanum að
kostnaðarlausu. Var það gert af mikilli rausn og' hlýjum huga.
Eignist héraðsskólarnir marga slíka velunnara, þurfa. þeir ekki að
kvíða framtíðinni. — Þá hefir verið byrjað að prýða umhverfi
skólans og hafa brekkurnar framan við skólann og sunnan v;ð
hann upp að Snorralaug verið lagaðar.
1 vetur eignaðist skólinn bókasafn Tryggva heitins Þórhallsson-