Ný saga - 01.01.1988, Side 37

Ný saga - 01.01.1988, Side 37
HUGARFARIÐ OG SAMTÍMINN Á 18. öld urðu töluverðar breytingar á kynlífi fólks. Pessar breytingar stóðu að sjálfsögðu í sambandi við vaxandi áherslu á einkalífið en þær voru mögulegar vegna aukinnar þekkingar á getnaðarvörnum. Siðferðisgildi voru þó mismunandi hvað konur og karla snerti. Konum var ætlað að hafa hemil á kynlífslöngun sinni og njóta kynlffsins aðeins með maka sínum og þá í hófi. Ástæða er til að ætla að karlasamfélagið hafi átt þátt í mótun þessara gilda þar sem allar hömlur á kynlífi gáfu þeim „ástæðu" til að leita ásta annarra en eiginkvennanna. Slikt gerðu þeir og ótæpilega. Hins vegar er Ijóst að þessi gildi fengu góðan hljómgrunn meðal kvenna. Þær vissu að aukið kynlíf jók líkurnar á barneignum. Fleiri börn þýddi erfiðari fjárhag heimilisins og minni tíma til að sinna þörfum hvers barns. En buddan og barnauppeldið var einmitt á ábyrgð eiginkvenna í millistéttarfjölskyldum á þessu tímabili. „IÐNBYLTING ÍSLENDINGA“ Okkur hefur orðið tíðrætt um þróun hugarfars í Evrópu á nýöld í ljósi framþróunar- kenningarinnar. Nú vendum við okkar kvæði í kross og hugum að því hvort eða hvernig framþróunarkenn- ingin gæti orðið að liði þegar litið er til Islands og þróunar hugarfars hér á landi. Vett- vangur okkar verður seinni hluti 19. aldar og fyrri hluti þeirrar 20., það skeið í sögu þjóðarinnar sem oft hefur verið nefnt mesta umbrota- tímabil íslandssögunnar. Flestir fræðimenn sem hafa fjallað um þetta tímabil eru þessarar skoðunar. Einn segir t.d. að tímabilið 1874—1940 sé „hið merkasta í sögu landsins. Aldrei hafa orðið jafn mikil- vægar breytingar á atvinnu- háttum og högum lands- manna.“'9 Annar segir að notkun gufuafls í íslenskum sjávarútvegi hafi orðið „hér sem annars staðar undirrót mikilla breytinga. Togaraút- gerð fól í sér iðnbyltingu ís- lendinga."20 En hverjar voru þessar stórstígu breytingar og eru þær þess eðlis að við get- um talað um byltingu í ís- lensku þjóðfélagi? Eins og áður hefur komið fram verða svörin sem hér verða gefin frekar í ætt við vangaveltur en niðurstöður ítarlegra rann- sókna. Þeirri hugmynd verð- ur varpað fram að í raun hafi ekki orðið hér bylting, þar sem hugarfar landsmanna tók ekki verulegum breytingum fyrr en komið var fram yfir árið 1940. Bylting felur ekki aðeins í sér breytingar á ytri búnaði samfélagsins heldur fyrst og fremst nýja hugsun, nýjan skilning á aðstæðum hvers og eins. Það er hins veg- ar alveg ljóst að breytingar áttu sér stað hér á landi um og eftir aldamótin 1900. Fyrst er að nefna þær lýðfræðilegu breytingar sem fólust í fjölgun þjóðarinnar og búsetuskipt- um. Þungamiðja alls þjóðlífs fluttist úr sveitum landsins til sjávarsíðunnar. Þéttbýlis-' kjarnar spruttu upp með nýj- um atvinnuháttum og meiri möguleikum til framfærslu. Lýsing sem þessi er öllum kunn, en hvað þýddi það í raun og veru að flytjast í þétt- býlið? Um 1900 var þéttbýli á Islandi smá eining. Lang- stærsti þéttbýliskjarninn var Reykjavík sem taldi um 6000 manns. Reykjavík fór þó ört vaxandi, þannig að um 1915 voru liðlega 14000 íbúar í bænum.21 Þessi tala var komin upp í 28000 íbúa árið 1930.22 Það liggur í augum uppi að tengsl Reykjavíkur, og reynd- ar enn frekar smærri bæja og kauptúna, við sveitina voru gríðarleg. Að þessu hafa verið leidd sterk rök sem sýna. svo ekki verður um villst að Reykjavík hafi í raun verið eitt stærsta landbúnaðarhérað landsins.23 Orðið þéttbýli er því á vissan hátt villandi vegna þeirra sterku ítaka sem sveita- menningin hafði innan bæjar- marka Reykjavíkur. Með öðr- um orðum: breytingin sem fylgdi því að flytja úr sveit í bæ hefur ekki verið jafn mikil og búast hefði mátt við í fyrstu. Fjölmargir bæjarbúar stunduðu einhvers konar bú- skap í bænum eða sóttu í kaupavinnu til sveita hluta ársins. Snúum okkur næst að at^ vinnuháttunum. Það fer ekki á milli mála að áherslurnar í íslensku atvinnulífi breyttust mikið með eflingu sjávarút- vegs. Tækifæri til framfærslu urðu fleiri en áður þekktust. Alþýða manna gat nánast óhindrað ruglað saman reit- um sínum í þéttbýlinu og var um leið laus við ýmsar kvaðir bændasamfélagsins. Sam- skipti urðu meiri og fjöl- breyttari. Það var hreinlega við meira að vera, bæöi hváð varðaði tómstundir og vinnu. Við getum því sagt að hegð- 35
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.