Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.2011, Side 11

Andvari - 01.06.2011, Side 11
ANDVARI FRÁ RITSTJÓRA 9 hefur ekki mikil opinber umræða orðið og einkum er athyglisvert hve forustu- menn í stjórnmálaflokkum hafa látið sér hægt að bregðast við því. Helst er að telja orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, í ræðu hans á Hólahátíð 14. ágúst. Hann lagði réttilega áherslu á að stjórnar- skrá verði að vera meira en orð á blaði. Vitnaði hann í afar falleg mannrétt- indaákvæði í stjórnarskrá Sovétríkjanna frá árinu 1936, á sama tíma og morð- æðið rann á Stalín og hreinsanirnar miklu hófust. Þetta er að vísu öfgafullt dæmi, en bendir þó til þess að stjórnarskrá, hve góð sem hún er, dugar ekki til að tryggja gott stjórnarfar ef valdamenn svífast einskis og hafa möguleika á að beita fólskulegum aðferðum, þótt ekki sé í jafnstórfelldum mæli og Stalín hafði. í framhaldi af þessu sagði Sigmundur Davíð: Stjórnarskrá verður að endurspegla sannfæringu, þá sannfæringu þjóðarinnar og stjórnvalda að hún sé til þess ætluð að standa vörð um það sem er rétt og gott - og svo verður að fara eftir henni. Stjórnarskráin ein og sér veitir ekki vernd nema að baki henni búi samfélagssáttmáli sem á sér djúpar og sameiginlegar rætur. Stjórnarskrá á ekki að vera pólitísk, hægri- eða vinstrisinnuð. Hún er lýsing á þeim reglum sem við erum almennt sammála um, hvort sem við erum til hægri eða vinstri eða á miðjunni. Þess vegna hefur iðulega verið leitast við að gera allar breytingar á stjórnarskrá landsins í sátt, enda nær hún ekki tilgangi sínum ef ekki er samkomulag um að virða hana. Margir, ég þar á meðal, töldu að það mætti nota það tækifæri sem gafst með efnahagshruninu til að bæta ýmsa þætti samfélagsins og taka allt til skoðunar, þar með talið stjórnarskrána. Reynslan hefur hins vegar sýnt að það andrúmsloft sem myndaðist í samfélaginu á undanförnum þremur árum hefur ekki skapað bestu aðstæðurnar til að skrifa nýja stjórnarskrá. Stjórnlagaráð, hópur sem ráðinn var til að skrifa drög að frumvarpi um stjórnarskrá, hefur nú skilað niðurstöðum sínum. I þeim tillögum er margt gott að finna en þó finnst mér þær bera um of mark þess samtíma sem þær eru unnar í, skrifaðar fyrir ríkjandi umræðu og undir áhrifum hennar. Þær eru um of barn síns tíma en það er einmitt það sem stjórnarskrá á ekki að vera. Stjórnarskrá þarf að vera sígild. Stjórnarskrá á ekki að vera eins og kosningabæklingur stjórnmálaflokks. Stjórnarskrá á að innihalda grunnreglur lýðræðis, ekki grunnstef orðræðu. Hún verður að vera byggð á meginreglum, algildum og framfylgjanlegum. Það er þó full ástæða til að nýta tillögur stjórnlagaráðsins í umræðu um stjórnarskrána auk vinnu stjórnarskrárnefndar og aðrar ábendingar. Þetta eru athyglisverð orð formanns Framsóknarflokksins. En mótsögn virðist mér í því að benda annars vegar á að vinnan við nýja stjórnarskrá fer af stað vegna tiltekinna og örlagaríkra atburða í þjóðfélaginu og finna hins vegar að því að tillögunar séu „skrifaðar fyrir ríkjandi umræðu og barn síns tíma.“ Auðvitað eru allir menn, orð þeirra og verk, börn síns tíma. Það er ofætlun og blekking að nokkur geti sest á þularstól ofar straumum samtím- ans. Stjórnarskrá byggist annars vegar á klassískum grunnreglum lýðræðis, hefðum og reynslu genginna kynslóða, og hins vegar á hún að bera fram
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.