Andvari - 01.06.2011, Síða 22
20
GUÐRÚN KVARAN
ANDVARI
og 1934 virtist áhugi á stjórnmálum dofna, helstu ræðuskörungarnir
voru farnir heim aftur og helstu málefni margrædd og í raun útrædd.
Stríðið breytti einnig miklu og var vegna sambandsleysis við Island ekki
unnt að fjalla um þau mál sem efst voru þar á baugi.
Menningarþátturinn hélst frá upphafi þótt aðeins hefði dregið úr
honum þegar stjórnmálaáhuginn var sem mestur. Félagar í Stúdenta-
félaginu héldu erindi og nefnir Jakob þar sérstaklega Jón Helgason og
Finn Jónsson, og ýmsir góðir gestir töluðu hjá félaginu. Þar nefnir Jakob
Árna Pálsson prófessor, Davíð Stefánsson skáld, Kristin E. Andrésson,
Kristján Albertsson, Sigurð Nordal og Þórberg Þórðarson. Eins lásu
skáld úr verkum sínum, m.a. Guðmundur Kamban, Gunnar Gunnarsson
og Halldór Laxness. Ekki nefnir Jakob sjálfan sig sem fyrirlesara þótt
vitað sé að hann var þeirra á meðal eins og sjá má m.a. af skrifum
Guðmundar Arnlaugssonar, síðar menntaskólakennara, dósents og
fyrsta rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Hann var samtímis Jakobi
í Kaupmannahöfn og nam raungreinar. Hann skrifaði grein í fyrsta
árgang Fróns um félagsmál íslendinga erlendis og er áhugavert að lesa
hvað hann segir um fundi íslendingafélagsins og þátt þeirra Jakobs og
Jóns Helgasonar í starfi þess:
f vetur er leið og aftur nú í vetur hefur Stúdentafélagið haldið kvöldvökur með
íslenzku efni á hálfsmánaðar fresti, og svo er þetta tímarit sem nú hefur göngu
sína einnig af þeim rótum sprottið. Kvöldvökurnar, sem tveir menn hafa annazt
frá upphafi, þeir Jón Helgason prófessor og ritstjóri þessa tíinarits, hafa verið
á þann veg úr garði gerðar að hver þeirra hefur verið byggð upp um eitthvert
ákveðið efni. Sem dæmi um efnisval má nefna: Bessastaðir, Sjósókn og sigl-
ingar, í óbyggðum, íslendingar í Vesturheimi. Framsögumaður kvöldvökunnar
safnar sem fjölbreyttustum lesköflum um efnið úr íslenzkum bókum, og á
sjálfri kvöldvökunni eru þeir lesnir upp, skýrðir og tengdir saman af framsögu-
manni. Að jafnaði hafa og verið valdir söngvar sem á einhvern hátt snerta efni
kvöldvökunnar. Eru söngvar þessir fjölritaðir og sungnir á milli þátta. Gestir
kvöldvökunnar kynnast þannig bókmenntum og sögu landsins á auðveldan
og ánægjulegan hátt, læra ný og gömul ljóð undir nýjum og gömlum lögum,
dvelja eina kvöldstund í samvist við landa sína og þau mál sem eru sameign
allra íslendinga eða ættu að vera. Hið frjálsa og óþvingaða form kvöldvökunnar
gerir hana að skörpu menningarvopni í höndum fróðra og hugkvæmra manna.
Hefur stúdentafélagið í Höfn verið óvenju heppið að eiga þá Jón og Jakob að,
enda óvíst hvort ráðizt hefði verið í kvöldvökurnar ella.11
Þrátt fyrir annasöm störf hefur Jakob gefið sér tíma til að standa að
kvöldvökum Islendingafélagsins ásamt Jóni Helgasyni. Þeim varð strax