Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.2011, Side 24

Andvari - 01.06.2011, Side 24
22 GUÐRÚN KVARAN ANDVARI sé ekki ætlað að vera „málgagn Stúdentafélagsins eða stúdenta yfirleitt, heldur á það að vera miðað við alla þá íslendinga sem erlendis dvelja.“ Ritið átti að vera hlutlaust í stjórnmálum, „enda eru tíðindi þau sem berast frá íslandi of fáorð og óljós til þess að hægt sé að ræða íslenzk stjórnmál á viðeigandi hátt.“15 Ætlunin var að fjögur hefti kæmu út árlega og gekk það eftir í tvö ár. Fyrsta hefti þriðja árs kom út í mars 1945 og var aftan á kápu boðað annað hefti í júní og auglýst eftir efni fyrir 15. maí. Af einhverjum ástæðum kom það ekki út og var útgáfu hætt. Ef til vill var þörfin ekki lengur hin sama. Stríðinu var lokið, Island orðið sjálfstætt ríki, samband þess við umheiminn annað en í upphafi árs 1943 og margir íslendingar, sem orðið höfðu innlyksa í Kaupmannahöfn á stríðsárunum, héldu nú heim. Ef litið er yfir efni heftanna níu vekur athygli hversu margar greinar eru eftir þá Jakob og Jón Helgason sem reyndar birti þar einnig kvæði. Svo virðist sem þeir á þessum árum hafi flutt efni á kvöldvökunum nokkuð reglulega sem þeir síðan birtu í Fróni og voru þeir þó báðir önnum kafnir við dagleg verkefni sín. Jakob á grein í hverju hefti, stundum fleiri en eina, og var ritstjóri allt til loka. Kvöldvökur stúdentafélagsins hófust haustið 1941. Þeir Jakob og Jón birtu yfirlit yfir efni þeirra í fjórða hefti fyrsta árgangs Fróns16 og má þar sjá að alls voru þær 25 á árunum 1941 til 1943 og af þeim flutti Jakob tíu erindi og tvö að auki með Jóni. Allur undirbúningur var endurgjaldslaus og ekki var krafist aðgangseyris en félagið hafði fengið styrk til starfseminnar. í yfirlitinu er birtur gestafjöldi á hverju kvöldi og má af þeim tölum sjá að kvöldvökurnar voru yfirleitt mjög vel sóttar. A annað hundrað manns þegar fjölmennast var. Mikill metnaður var greinilega lagður í Frón, efni var fjölbreytt og frágangur allur vandaður. Ymsir lögðu ritinu lið með góðum greinum eða skáldskap, bæði í bundnu og óbundnu máli. Öll vinna við ritið var án endurgjalds og hefur eljusemi Jakobs verið með ólíkindum því að ýmislegt gerði hann fleira á þessum árum. Fyrstu þýdingar Jakobs á verkum Halldórs Laxness Þegar 1935 kom út fyrsta þýðing Jakobs á skáldverki eftir Halldór Laxness. Það var Frie mœnd en bókin Sjálfstœtt fólk (fyrra bindi) kom
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.