Andvari - 01.06.2011, Síða 32
30
GUÐRÚN KVARAN
ANDVARI
Kristinn var heima fyrsta misseri Jakobs og gat gefið góð ráð og sömu-
leiðis reyndist Einar Andrésson betri en enginn. En róðurinn var ekki
léttur. Gjaldeyrishöft voru tekin upp 1947 og gjaldeyrir naumt skammt-
aður. Bækur Máls og menningar voru prentaðar í stóru upplagi en
prentsmiðjur áttu erfitt með að afla gjaldeyris til pappírskaupa og vildu
helst ekki prenta nema félagið legði til pappír. Gjaldeyrishömlurnar
komu einnig niður á kaupum erlendra bóka fyrir bókabúðina, íslenskir
bóksalar misstu lánstraust og urðu að staðgreiða pantanir. Undarlegt
verðlagseftirlit var einnig í gildi um bækur. Telja átti allan beinan
kostnað við framleiðslu bókar, tvöfalda þá upphæð og deila í útkomuna
með eintakafjöldanum. Þá fékkst verð bókarinnar. Eins og Jakob bendir
á í greininni seldust bækur sjaldan upp og var þetta fyrirkomulag útgef-
endum afar óhagstætt. Það var því ekki létt verk sem Jakob tók að sér
þann tíma sem hann leysti Kristin af. Ekki var þó allt amstur og streð og
virðist Jakob hafa haft ánægju af samskiptum við höfunda og þýðendur
og margir þeirra urðu góðir vinir hans. I viðtali við Þjóðviljann í til-
efni afmælis Máls og menningar rifjaði hann upp þær bækur sem hann
átti beinan þátt í að gefnar yrðu út á þeim tíma sem hann var fram-
kvæmdastjóri. Önnur var Ljóðfrá ýmsum löndum, þýðingar Magnúsar
Asgeirssonar á erlendum ljóðum, hin var Úr landsuðri, ljóðabók Jóns
Helgasonar, önnur prentun með úrfellingum og viðaukum. Annars var
búið að ákveða útgáfu félagsins fram í tímann þegar Jakob tók við.33
Um árabil skrifaði Jakob reglulega í tímarit félagsins, beittar ritstjórnar-
greinar, ritdóma, eftirmæli og styttri fræðigreinar.
Það teygðist úr afleysingartímanum. Kristinn veiktist alvarlega
erlendis og kom ekki til landsins fyrr en 1948. Jakob hafði þá þegar
fengið stöðu forstöðumanns Orðabókar Háskólans og sagt upp bóka-
varðarstöðu sinni í Kaupmannahöfn. Hann var þó staðgengill Kristins
þar til hann gat aftur tekið við framkvæmdastjórastöðunni.
Jakob varð þegar frá fyrsta hefti Tímaritsins árið 1947 ritstjóri ásamt
Kristni til 1970 en eftir það og til 1975 með Sigfúsi Daðasyni. Hann sat
óslitið í stjórn Máls og menningar frá 1946, varð varaformaður 1948,
gegndi því embætti í um 40 ár og sat í stjórn fram undir andlátið.
Mál og menning kunni vel að meta framlag Jakobs í þágu félagsins.
Kristinn E. Andrésson var framkvæmdastjóri til 1971 en þá tók Sigfús
Daðason við starfinu og gegndi því til 1973. Þá tók Þröstur Ólafsson
við framkvæmdastjórastöðunni og Sigfús varð útgáfustjóri. Vegna
ágreinings innan félagsins hvarf Sigfús frá Máli og menningu 1975 og