Andvari - 01.06.2011, Page 52
50
GUÐRÚN KVARAN
ANDVARI
Hafnarárum sínum en ekki haft greiðan aðgang að því þar sem hand-
ritin hefðu verið lokuð inni í öruggri geymslu á stríðsárunum.77 Er
mjög líklegt að þeir vinirnir hafi rætt þetta merkilega orðabókarverk
og nytsemi þess.
Jón Ólafsson fékk snemma áhuga á orðabókargerð. Hann varð eins
og kunnugt er ritari Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn og síðar
styrkþegi Árnanefndar eftir að Árni féll frá. Talið er að hann hafi
byrjað verkið skömmu eftir 1730 og átt við það til dánardægurs 1779.
Hann safnaði ekki á seðla heldur skrifaði á blöð orð sem komu upp í
hugann og byrjaði á sérhljóðunum. Hann komst fljótlega í þrot með
rúm innan stafrófsraðarinnar er orðum og ýmsum fróðleikskornum
skaut upp í hugann. Þá skrifaði hann á spássíur, milli lína og hvar sem
auðan blett var að finna, jafnvel á síðustu árunum á seðla sem hann
lagði inn í bindin. Skýringar Jóns eru langflestar á latínu, eins og venja
var til á þeim tíma, en víða grípur Jón til dönsku og íslensku ef honum
finnst latínan ein ekki nægja. Handritið er mjög óárennilegt og erfitt að
finna í því það sem að er leitað. Það er illlæsilegt öðrum en þeim sem
eru vel læsir á skrift Jóns.
í áður nefndum fyrirlestri sagði Jakob frá glímunni við orðabókar-
handritið. Það lýsir vel hógværð hans að hann notaði nær ávallt „við
orðabókarmenn“ þegar hann lýsti vinnubrögðum þeim sem þurfti til
verksins sem hann vann þó einn. Að vísu bætti hann við: „Að sjálf
orðtakan lenti á mér, kom einfaldlega til af því að ég kunni meira í
latínu en félagar mínir og var líklega heldur vanari að lesa 18. aldar
skrift.“ Hann sagðist hafa unnið við handritið í ígripum í mörg ár og
reynt að skrifa eitthvað á hverjum degi, „enda þurfti ég alltaf ýmsu öðru
að sinna, og í það fór reyndar mestur vinnutími minn.“78
Jakob skrifaði eða vélritaði á seðla allar flettur og undirflettur og
er áætlað að seðlarnir séu um 50.000 en einstök orð rúmlega 40.300.
Þarna opnaði Jakob orðabókarmönnum og fræðimönnum öllum leið
inn í orðaforða og mál 18. aldar. Handritið hefur að geyma mikinn
orðaforða, ekki aðeins úr eldri og yngri ritum, heldur einnig úr mæltu
máli, og mikinn fjölda dæma um orðasambönd og talshætti.79
Rétt er að geta þess hér að í árslok 1993 var stofnað félagið Góðvinir
Grunnavíkur-Jóns sem hefur það að markmiði að breyta þeirri mynd
sem menn lengi höfðu haft af Jóni Ólafssyni úr Grunnavík og er það
ætlun félagsins að standa vörð um fræðimannsheiður hans með því
að kynna hann, æviferil hans og störf. Jakobi var boðið að gerast