Andvari - 01.06.2011, Blaðsíða 66
64
GUÐRÚN KVARAN
ANDVARI
Jakob var sæmdur stúdentastjörnunni 6. desember 1969. Forseti
Stúdentaakademíunnar, Sigurður H. Guðmundsson, stud. theol.,
afhenti stjörnuna. Þetta var í annað skipti sem hún var veitt fræði-
manni og fylgdu stjörnunni lofsamleg ummæli. Jakobi var með þessu
sýndur verðskuldaður sómi sem hann kunni vel að meta. Hann flutti
erindi á fundi Stúdentaakademíunnar sama dag sem hann nefndi
íslenzk ordabókastörf og er það prentað í Riti Stúdentaakademíu II.106
Einnig eru látin fylgja með nokkur viðhorf fundargesta og svör Jakobs
(25-32).
Arið 1974 fékk Jakob verðlaun úr sjóði Asu Guðmundsdóttur Wright
en þau eru veitt árlega fyrir framúrskarandi árangur í vísindum.
Arið 1994 var Jakob kosinn heiðursfélagi í Sagnfræðingafélagi
Islands og árið 1997, þegar hann varð níræður, gerði Mál og menning
hann að heiðursfélaga og var hann vel að þeirri sæmd kominn eftir
hálfrar aldar starf fyrir félagið. Kínversk-íslenska menningarfélagið
kaus hann heiðursformann 1994 þegar hann lét af störfum fyrir félagið.
Jakob var heiðursdoktor frá þremur háskólum, háskólanum í
Birmingham 1976, Háskóla Islands 1977, árið sem hann varð sjötugur,
og háskólanum í Bergen 1980. í tengslum við heiðursdoktorstitilinn
í Bergen hélt hann erindi þar í borg en einnig í Osló og Þrándheimi
um aukinn áhuga á fornsögum á íslandi á 17. öld og byggir þar m.a. á
rannsóknum sínum á Arngrími. Erindið var birt sem grein í Maal og
Minne 1981.107
Tímaritið Orð og tunga, sem upphaflega var rit Orðabókar Háskólans
en síðar rit Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum eftir
sameiningu fimm stofnana 2006, boðaði til ráðstefnu í Reykholti 1.
desember 2007 í tilefni þess að Jakob hefði orðið hundrað ára 20. júlí
sama ár. Fluttir voru sjö fyrirlestrar og voru sex þeirra prentaðir í 11.
árgangi tímaritsins.108
Tvö afmælisrit voru gefin út Jakobi til heiðurs. Hið fyrra þegar
hann varð sjötugur en hið síðara þegar hann varð áttræður. Fyrra
afmælisritið109 var í tveimur bindum með sjötíu greinum fræðimanna
sem heiðra vildu Jakob og komust færri að en vildu. Síðara ritið,
Lœrdómslistir,uo birti 26 greinar eftir Jakob sjálfan auk ritaskrár
hans með 580 færslum til ársins 1989. Eftir lát hans var birt í Griplu
XI skrá yfir það sem fallið hafði niður í ritaskránni og eins yfir það
sem hann hafði birt eftir 1989.ulAlls eru þetta 16 færslur til viðbótar.
Þessir listar sýna vel hve Jakob var afkastamikill fræðimaður allt