Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.2011, Side 94

Andvari - 01.06.2011, Side 94
92 ÁSTA KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR ANDVARI Mér fannst ákaflega girnilegt að reyna að láta persónurnar koma fram í samtölum. Ég notaði töluvert eintal. Snaran er á vissan hátt eintal og þó ekki því viðmælandinn er alltaf nærstaddur. Sögumaður tekur alltaf upp hluta af því sem viðmælandinn hefur sagt og leiðir út frá því, en þetta form hentaði söguefninu og mér mjög vel. Eintalið er mun hreinna í smásögunni Lífshætta. Þar talar kona inn í hug sinn um heimsókn sem hún hefur fengið og viðmælandinn er hvergi nærstaddur. Þessar sögur hefði verið hægt að skrifa í samtalsformi, en ég kaus að hafa þetta svona. (Jakobína Sigurðardóttir 1988:19) Sóparinn Snaran er í raun ein stór persónulýsing þar sem sóparinn lýsir sér sjálfur með orðum og gerðum. Enginn sögumaður eða önnur persóna gefur lesandanum upplýsingar um persónu sóparans með beinum hætti og fyrir vikið vega orð hans og tal þungt. Lesandinn verður samt að taka þeim upplýsingum með ákveðnum fyrirvara. Sóparinn lýsir sér vissulega með orðum og gerðum - en kannski ekki síst með því misræmi sem er þar á milli. Sóparinn er dæmigerð aðalpersóna dramatísks eintals, sé miðað við lýs- ingar Buchholz, Jahns og Hobsbaums. Hann segir oft eitt en meinar annað, dregur orð sín til baka, lýgur vísvitandi, er orðljótur og baktalar yfirmenn sína og samstarfsmenn en þorir ekki að láta á neinu bera þegar þeir heyra til. Hann talar mikið um verkfallsrétt þann sem hann og aðrir í verkalýðsstétt hafi en síðan kemur í ljós að hann myndi aldrei nýta sér þann rétt í raun og veru heldur lætur hann yfirmenn sína múta sér til að vinna gegn réttindabaráttu samstarfsmanna sinna. Sóparinn er sem sagt veiklyndur; bleyða sem metur peninga meira en hugsjónir og hagar seglum eftir vindi hverju sinni. í eftir- farandi tilvitnunum sést hvernig hann afhjúpar sig: Nei, mér er skítsama hvað ég vinn, og hjá hverjum ég vinn, bara ef ég hefi vinnu og fæ kaup fyrir mína vinnu. Skítsama, akkúrat skítsama —. (Jakobína Sigurðardóttir 1968:26)7 Fólk á ekki að reka trýnið í hluti, sem eru utan þess verkahrings, það borgar sig aldrei. Vinna sitt verk, skila hæfilegum afköstum, halda kjafti og hirða sitt kaup, það er lóðið. (9) Ég segi fyrir mig, ég var að hugsa um að ganga út, en fyrst allir sátu kyrrir gat ég eins setið líka. (27) Persóna sóparans vekur oft sterk viðbrögð lesenda og sumir gætu átt erfitt með að þola hann.8 Þar kemur frásagnarformið einnig við sögu því það er afar ágengt og jafnvel óþægilegt. Lesandinn er settur í þá aðstöðu að hlera samtal sem hann getur ekki blandað sér í og auk þess eru ágætar líkur á að hann
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.