Andvari

Volume

Andvari - 01.06.2011, Page 106

Andvari - 01.06.2011, Page 106
104 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON ANDVARI munnlegu frásagnar, ekki síður en hinnar sem fest er í lesmál.2 Öðlaðist hann þannig snemma á ferli sínum alþjóðlegt orðspor sem afreksmaður í ýmsum greinum. Sem dæmi má nefna að í grein um kvikmyndir í Alþýðublaðinu árið 1937 er vikið að þátttöku „höfuðskáldsins" Hemingways í borgarastyrjöld- inni á Spáni og þessum orðum hnýtt við: „Hann er þróttmikill ungur maður, frægur fyrir skíðastökk í Alpafjöllunum og talinn með beztu riffilskyttum í heimi.“31 erlendri bók um fiskveiðar árið áður er hann sagður einn af tveimur bestu fiskveiðimönnum veraldar.4 Og sannfæringarmáttur Hemingways náði til fleiri sviða, því að hann þótti myndarmaður og umsagnir um áhrif hans á kvenfólk minna jafnvel á viðlíka lýsingar á því hvernig karlmenn áttu til að verða andstuttir þegar kvikmynda- stjarnan Marilyn Monroe gekk í salinn. Það var sem súrefnið kláraðist, segir á einhverjum stað um nærveru þeirrar ágætu konu. Ógerlegt er að greina sundur manneskjuna og ímyndina þegar um slík áhrif er að ræða, og víst er að ímynd karlmennskunnar var Hemingway mikilvæg og eftirsóknarverð. Allt lagðist á eitt um að gera þennan talsmann einverunnar - og það er hann sannarlega í skáldverkum sínum - að almenningseign í sviðsljósinu. Líkt og þekktasta fólk kvikmyndanna og íþróttaheimsins varð Hemingway að stjörnu, líklega umfram það sem segja má um nokkurn annan rithöfund í lifanda lífi. Sjónvarpið varð ekki áhrifamikill miðill fyrr en seint á ævi hans, en útvarp, dagblöð og tímarit fylgdust með stjörnunum, ekki síst rit eins og Life Magazine, þar sem iðulega mátti hitta Hemingway fyrir. Og frægðin kom snemma og þar með skerðing einkarýmisins. Þetta mátti sjá þegar Hemingway skildi við fyrstu konu sínu, einungis 27 ára gamall, og frá því var greint í stórblaðinu New York Times.5 Þá var hann nýorðinn þekktur sem rithöfundur í París, höfundur skáldsögunnar The Sun Also Rises. Upp frá því var frægðin eins og skuggi, sem átti það til að öðlast sjálfstætt líf og verða gjarnan skrefinu á undan manninum sjálfum. Allt vekur þetta spurningar um tengsl rithöfundar og verka hans. Er ekki hægt að meta verk höfunda án tillits til þekkingar á lífsferli þeirra? Vissulega - og þetta hefur verið ráðandi atriði í bókmenntafræði frá því snemma á síðustu öld. Skáldverk geta talað án þess að við búum yfir nokkurri vitneskju um ævi höfundarins. Og gagnrýnin á hina gömlu ævisögulegu aðferð í bók- menntafræði er enn í gildi hvað það varðar að hæpið getur verið að nota atriði úr lífi höfundarins sem lykil að vissum þáttum skáldverka - hvað þá að meta skáldverkin sem einskonar spegil örlagaríkra stunda á lífsferli skáldsins. En það kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að líta á birtingarmyndir æviferilsins sem efnivið túlkunar. Ummerki um lífsferil og viðhorf höfundar eru þá ekki metin sem fastar staðreyndir til hliðsjónar við túlkun bókmenntaverka, heldur sem annars konar menningarskrift, ef svo má að orði kveða, sem er í vissu spennusambandi við skáldverkin. Þetta á ekki síst við þegar höfundur er áber-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.