Andvari

Volume

Andvari - 01.06.2011, Page 123

Andvari - 01.06.2011, Page 123
ANDVARI Á HÖTTUNUM EFTIR HEMINGWAY 121 Hefðarveldi ogfallvelti Önnur þeirra bóka Hemingways, sem nefndar voru rétt í þessu, nefnist á ensku A Moveable Feast, og var meðal eftirlátinna rita Hemingways, sem komu út smám saman áratugina eftir að hann lést. A Moveable Feast - sem geymir minningar Hemingways frá París á þriðja áratugum og má vel kallast skáldævisaga - birtist 1964 og kom tveimur árum síðar út í íslenskri þýðingu Halldórs Laxness undir hinu hnyttna heiti Veisla í farángrinum (þýðingin var endurútgefin 1988). í grein sem Pétur Gunnarsson hefur skrifað um þá Halldór og Hemingway varpar hann fram þeirri spurningu hvort það geti verið að vinnan við að snúa Veislunni á íslensku „hafi orðið til þess að Kristnihald undir Jökli snerist úr leikriti í skáldsögu og Halldór komst á nýtt skáldsöguspor?"42 Skáldævisöguhugtakið mætti einnig nota um báðar Afríkubækur Heming- ways, Green Hills ofAfrica (sem ekki hefur birst á íslensku) og True at First Light sem kom ekki út fyrr en 1999 og er kölluð skáldsaga í inngangsorðum Patricks Hemingways, sonar höfundarins. Hún kom út sama ár á íslensku í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar og nefnist Satt við fyrstu sýn. Af öðrum ritum sem Hemingway skildi eftir ófrágengin og birst hafa síðan er sérstök ástæða til að nefna skáldsögurnar Islands in the Stream (1970) og The Garden of Eden (1986), sem sýna skemmtilega ólíkar hliðar á sagnalist höfundarins. Myndin af höfundarverki Hemingways hefur því breyst nokkuð síðan hann lést og það á einnig við um þá mynd sem birtist í íslenskum þýðingum. Þó er enn ýmislegt óþýtt af bókarverkum höfundarins, t.d. tvær síðastnefndar skáld- sögur, sem og skáldsögurnar The Torrents of Spring (1926) og áðurnefnd Across the River and Into the Trees (1950). Hin stóra nautaatsbók Hemingway frá 1932, Death in the Afternoon, er ekki heldur til á íslensku. Ekki er líklegt að hún verði birt í heild á íslensku, en gjarnan mætti þýða úr henni valda kafla, því að í henni má finna sumt af því mikilvægasta sem Hemingway lét frá sér fara um ritlist og fagurfræði. Ljóst er að Hemingway var fjölhæfur rithöfundur. Hann lagði raunar litla rækt við leikritun og þótt eftir hann liggi nokkuð af ljóðum,43 er það á sviði frásagnarbókmennta sem stjarna hans hefur skinið skærast. Sjálfsævi- sögulegur prósi hans hefur hlotið misjafnar viðtökur (A Moveable Feast þó oftast góðar). Hvað skáldsögurnar varðar, þá verður ekki synjað fyrir mikil- vægi verka eins og The Sun Also Rises, A Farewell to Arms, For Whom the Bell Tolls og Tlie Old Man and the Sea, en mat bókmenntafræðinga og rit- höfunda á skáldsögum Hemingways hefur samt verið misjafnt og sveiflukennt t gegnum tíðina - líklega þó einkum í heimalandi hans. Þetta minnir jafnvel á hinar miklu sveiflur í gildismati á verkum landa hans, Edgars Allans Poes, á heimaslóð. Vissulega má benda á veika punkta í skáldsögum Hemingways.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.