Andvari

Volume

Andvari - 01.06.2011, Page 125

Andvari - 01.06.2011, Page 125
ANDVARI Á HÖTTUNUM EFTIR HEMINGWAY 123 Smásagnahöfundurinn Kannski er hæpið að telja blaðsíður þegar mat er lagt á safnrit sem þetta. Gott er að muna að hvert orð er oft dýrt hjá Hemingway, sérstaklega í mörgum smásagna hans, eins og í „Hills Like White Elephants“ sem er að langmestu leyti samtal karls og konu á lestarstöð nálægt Ebrófljótinu á Spáni - samtal þar sem mestallt inntakið felst í því sem ekki er sagt. Hvað sem líður misjöfnu gengi Hemingways, heima fyrir og erlendis, ríkir sennilega hvað mestur samhljómur um stöðu hans sem smásagnahöfundar. I heimi smásögunnar beggja vegna Atlantshafsins er hann einn af meist- urum 20. aldar, í flokki með Tjekov, Joyce, Mansfield, Kafka og Borges. Hemingway skrifaði um 70 smásögur, flestar á fyrra hluta ferils síns. Hann er jafnvígur á mjög stuttar sögur þar sem teiknuð er augnabliksmynd eða stutt röð atvika, sem lúta þó að einhverskonar lífshvörfum og örlagastund, og á lengri og flóknari sögur þar sem endurlit og minningar fleyga hina líðandi stund, svo sem í hinni mögnuðu Afríkusögu „The Snows of Kilimanjaro". Sagan „Big Two-Hearted River“ er að sumra mati einn af hátindunum á sagnaferli Hemingways. í henni er hægur en mikill seiður sem tengist ánni er líður hjá þar sem veiðimaður býst til að kasta flugu fyrir fisk en er líka að dorga innra með sér, einn í náttúruathvarfi fjarri ys og þys hversdagsins. „The Short Happy Life of Francis Macomber", lengsta smásaga höfundarins, er svo gerólík veiðisaga og hryssingslegri. Svo kann að virðast sem smásagnaskáldið Hemingway hafi fallið rækilega í skugga skáldsagnahöfundarins í íslenskum bókmenntaheimi - að minnsta kosti allt til ársins 2004 þegar út kom fyrsta bókarverkið með safni smásagna hans, í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. En ef við tökum upp þráð, sem lagður var til hliðar fyrr í þessari grein, kann þó að koma í ljós að þetta er ekki einhlítt. Þar var getið um fyrstu smásagnaþýðingarnar, í Iðunni og Sunnudagsblaði Alþýðublaðsins, á fjórða áratug síðustu aldar. Þær næstu, sem ég hef fundið, birtust ekki fyrr en seint á fimmta áratugnum, en þó er líklegt að framhjá mér hafi farið þýðingar í tímaritum og blöðum sem enn hafa ekki verið efnistekin í þeim gagnagrunnum sem fyrr voru nefndir. Það var til dæmis eingöngu vegna áðurnefndrar samræðu ólíkra miðla sem ég fann Hemingway-þýðingar í tímaritinu Kjörnum. Við leit í Tímarit.is rakst ég á kvikmyndaauglýsingu í dagblaðinu Vísi 27. apríl 1949. Þar auglýsir Austurbæjarbíó myndina The Macomber Affair sem nefnd er á íslensku Vegir ástarinnar. I auglýsingunni segir að þessi „stórmynd“ með leikaranum Gregory Peck sé gerð eftir „smásögu Ernest Hemingway „The Short Happy Life of Mr. Macomber“ og birtist hún í tímaritinu „Kjarnar“ undir nafn- inu „Stutt og laggott líf“.“ Mikið væri gott ef kvikmyndaauglýsingar væru almennt svona upplýsandi!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.