Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 56
22
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
aðalpallinum fyrir alþingismenn og
gesti. Söngpallur hafði og verið
reistur í gjánni í norður frá Lög-
bergi, en var í helzt til mikilli fjar-
lægð frá ræðupallinum, til þess að
söngsins nyti þar eins og þurft
hefði, því að kringum Lögberg
Hr. TRYGGVI ÞÓRHALLSSON
forsætisráðherra Islands, er setti Alþing-
ishátíðina.
liafði allur fjöldi fólksins skipað
sér.
Athöfnin að Lögbergi hófst með
því að Þingvallakórið söng “Ó, guð
vors lands’’. Það er ávalt hrífandi
að heyra það lag vel sungið, eins
og það var í þetta skifti undir
stjórn Sigfúsar Einarssonar. Kring-
umstæðurnar gerðu hjörtu manna
móttækilegri fyrir regni tónanna,
en vanalega gerist. Þúsund árin
runnu saman í hugum manna í
einn dag, eitt augnablik — “eitt
eilífðar smáblóm með titrandi tár’’.
Þegar að kórið hafði lokið við að
syngja þjóðsönginn, setti forsætis-
ráðherra íslands, herra Tryggvi
Þorhallsson, hátíðina með snjallri
ræðu og vel fluttri, og bar hljóð-
beri hvert orð skýrt og greinilega
til allra sem staddir voru í námunda
við Lögberg. Að ræðu þeirri lok-
inni söng Þingvallakórið fyrri
hluta hátíðaljóðanna undir stjórn
Páls ísólfssonar. Kl. 11.30 setti
Hr. JóNAS JÖNSSON
dómsmálaráðherra Islands, formaður
Sambands íslenzkra samvinnufélaga, og
einn aðalmaðurinn í Undirbúningsnefnd
Alþingis.
konungur þing að Lögbergi. Mælti
hann á íslenzka tungu eða eins
nærri henni og hann gat komist.
Erindi hans var stutt og látlaust.
Að því loknu flutti forseti samein-
aðs þings og forseti hátíðarinnar,
heri'a Ásgeir Ásgeirsson, hátíðar-
ræðuna, snjallt mál og vel flutt,
Hefir sú ræða, eins og allar aðal-
ræður, sem fluttar voru við þetta
tækifæri, verið birtar á prenti, og
er óþarfi að fjölyrða um hana eða
þær hér.
Að ræðunni lokinni söng Þing-
vallakórið síðari hluta hátíðaljóð-
anna. Þegar því var lokið, var
kominn matmálstími, svo fólk gekk