Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 67
SM.yir’glla
Guðmundar Grfmssonar dómara til ríkisstjórans í Norður Dakota.
Rugby, Norður Dakota,
27. september, 1930.
Til Virðulegs herra Geo. F. Shafer,
ríkisstjóra Norður Dakota,
og virðulegra þingmanna ríkisins:
Samkvæmt þingsályktunartillögu
(Lög Norður Dakota 1929, bls. 374)
er samþykt var á löggjafarþingi
Norður Dakota, lilotnaðist mér sá
heiður að vera skipaður af ríkis-
stjóra George F. Shafer í þá stöðu,
er ofangreind þingsályktun ákveð-
!ur. Það varð mitt ljúfa hlutverk að
bera velvildarkveðjur og árnaðar-
óskir ríkis vors til stjórnar og þjóð-
ar íslands, á þúsund ára hátíð hins
íslenzka Alþingis. Mér hefir auðn-
ast að leysa þessa hugljúfu skyldu
af höndum og leyfi mér virðingar-
fyllst að leggja fram skýrslu þá, er
hér fylgir.
Eg tók mér far frá Montreal 14.
júní með eimskipinu “Montcalm’’,
eign Canada Kyrrhafs félagsins.
Saniskipa mér voru þessir erindrek
ar Bandaríkjanna: Senator Peter
Norbeck formaður ' fulltrúanefnd-
arinnar, 0. B. Burtness congress-
uiaður og F. H. Fljozdal. G. B.
Ejörnsson skattstjóri Minnesota-
ríkis og fulltrúi þess á liátíðinni;
tveir fultlrúar frá Canada, hr. Árni
Eggertsson og Capt. Sigtr. Jónas-
son, og fulltrúar frá þingum Mani-
toba- og Saskatchewanfylkja, hr.
Ingimar Ingaldson og hr. W. H.
Paulson.
Þetta skip hafði verið valið af
Heimfararnefnd Þjóðræknisfél. ís-
lendinga í Vesturheimi, til skemti-
ferðar. Milli 3 og 4 hundruð ís-
lendingar og afkomendur þeirra
voru um borð á leið til föðurlands-
ins, til að taka þátt í Alþingishá-
tíðinni. Skipið fór beint frá Mon-
treal til Reykjavíkur, og ferðin var
sérlega skemtileg, þrátt fyrir úfinn
sjó einn eða tvo daga.
Við komurn til Reykjavíkur að
kvöldi þess 20. Úti á flóanum
mætti okkur íslenzkt varðskip. Um
borð á því var ríkisstjórnin ís-
lenzka, Undirbúningsnefnd Alþing-
ishátíðar o. fl. Eftir að inn á
höfn var komið, kom borgarstjóri
Reykjavíkur um borð, og í för með
honum fjölment karlakór. Frá-
bærlega alúðlegar fagnaðarkveðj-
ur fluttu þessir ofangreindu em-
bættismenn oss gestunum.
Morguninn eftir vorum vér flutt-
ir á varðskipum stjórnarinnar f
land. Erindrekunum öllum var vís-
að til vistar í hinni nýju gistihöll
Hótel Borg, sem gestum íslenzku
stjórnarinnar. Þann dag var Vest-
ur-íslendingum einnig haldin al-
menn fagnaðarsamkoma í einu
leikhúsi borgarinnar. Sex ræður
voru fluttar af heldri borgurum
staðarins. Borgarstjóri stýrði sam-
komunni og karlakórið skemti. Á
sunnudaginn var guðsþjónusta í
dómkirkjunni, sérstaklega fyrir
gestina að vestan.
Á mánudaginn og þriðjudaginn
fór stjórn Islands með fulltrúana i
skemtiferð upp um land, til þess
að sýna þeim fegurð íslands og
ýmsa söguríka staði.
Á miðvikudagsmorgun, 25. júni
voru allir fultlrúar boðnir niður á
bryggju til að mæta konungi ís-
lands og Danmerkur, sem kom þá