Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 145
ELLEFTA ÁRSÞING
111
utan en gleymdu aldrei henni móður sinni.
Átthagarnir, ættjörðin, móðurmálið,
mentuð þjóð, mun fylgja oss með dá-
samlegri blessun það sem eftir er dag-
anna — og ganga að erfðum til barna
vorra.
* * *
Þingheimur þekkir hinar skáldlegu sög-
ur fyrri alda um bjargvígslur sem í Gríms-
ey, Látrarbjargi og Drangey. Einkum var
Guðmundum biskup Arason, auknefndur
hinn góði, frægur fyrir bjargvígslur. Við
vígslu í Drangey heyrði biskup eitt sinn
sagt. “Hættu að vígja Gvendur.” Hafði
þá loppa ein mikil, með biturri skálm,
skorið tvo þætti vaðsins er hélt biskupi
í bjarginu. En þriðji þátturinn var þaul-
vígður, og hvorki tröllið né sveðjan gat
skorið þáttinn margvígða.
Þjóðlífstaugin íslenzka er slíkur þátt-
ur, — þaulvigður og óslítandi.
Niðurlagsreindi, í smá ljóði einu um
þetta efni, geri eg að mínum síðustu orð-
um í von um að það túlki tilfinningar allra
er þing þetta sitja:
Svo þaulvígð er íslenzk þjóðlífs taug,
Að þrautir Drangeyjar reynast spaug.
Mér sveðjan né loppan ægja ei. —
Eg íslenzkur maður lifi og dey.
Jónas A. Sigurðsson.
Er forseti hafði lokið ræðu sinni, lagði
St. Einarsson til að greiða forseta þakk-
lætisatkvæði. Bar séra Friðrik A. Frið-
riksson upp tillöguna, og reis þingheim-
ur úr sætum með lófaklappi.
B. B. Olson lagði til, G. S. Friðriks-
son studdi, að forseti skipi 3 manna kjör-
bréfanefnd. Samþykt. Útnefndir: Friðrik
A. Friðriksson, B. B. Olson, Miss Hlað-
gerður Kristjánsson.
I fjarveru beggja ritara félagsins, var
séra Friðrik A. Friðriksson kjörinn rit-
ari þingsins.
Lagt til og samþykt að forseti skipaði
dagskrárnefnd. tJtnefndir: séra Ragnar E.
Kvaran, Ragnar Stefánsson, séra Jóh. P.
Sólmundsson.
Meðan fyrgreindar nefndir störfuðu,
varð stutt fundarhlé. G. S. Friðriksson
skoraði þá á forseta að ávarpa þingið
með ræðu. Varð forseti við því og
flutti stutta en snjalla ræðu um íslenzk-
ar bókmentir
Var þá dagskrárnefnd tilbúin með til-
lögur sínar, er séra Ragnar E. Kvaran
las upp, og vóru þegar samþyktar.
Fyrsta mál á dagskrá var kosning
heiðursfélaga. Fyrir hönd stjórnarnefnd-
ar bar Árni Eggertsson fram þá tillögu,
að Halldór S. Bardal yrði kjörinn heið-
ursfélagi Þjóðræknisfélagsins. Margir
studdu. Reis þingheimur úr sætum ti!
samþykkis.
Svohljóðandi skýrsla kjörbréfanefndar
var lögð fyrir þingið:
1. Kjörbréfanefndin leyfir sér, að
benda á tillögur kjörbréfanefndar frá
fyrra þingi (1.—4. liður; sbr. fundargerð-
ir síðasta þings), og leggur til að þeim
verði fylgt á þessu þingi.
2. Skrá þeirra fulltrúa og meðlima, er
hafa gefið sig fram, er á þessa leið:
I. Deildin Island, Brown, Man. Full-
trúi: Th. J. Gíslason, 21 atkv.
II. Deildin “Brúin”, Selkirk, Man. Full-
trúar: Miss Dóra Benson, 20, atkv.;
Bjarni Dalman, 20 atkv.; Guðjón S. Frið-
riksson, 17 atkv.; Mrs. Sigurbjörg John-
son, 20 atkv.; Þórður Bjarnason, 20 at-
kvæði.
III. Deildin “Harpa”, Winnipegosis,
Man. Fulltrúar: Guðrún Friðriksson.
21 atkv.; Þorsteinn Oliver, 10. atkv.
IV. Deildin “Fjallkonan”, Wynyard.
Sask. Fulltrúar: Mrs. Matthildur Frið-
riksson, 19. atkv.; séra Friðrik A. Frið-
riksson, 20 atkv.
V. Deildin “Iðunn” Leslie, Sask. Full-
trúar: Rósmundur Árnason, 21 atkv.
VI. Félagatal deildarinnar “Frón”
Winnipeg, ber það með sér að 210 félag-
ar hafa þingréttindi.
VII. Þá er og nefndinni kunnugt um
að þessir félagar eru viðstaddir: J. K.
Jónasson, Vogar; Asgeir Bjarnason, Sel-
kirk; Séra Jóhann P. Sólmundsson; Mrs.
J. P. Sólmundsson, Gimli; Vilhjálmur
ðlafsson, Brown; Eiríkur Hallson, Lundar
Beggi Sveinsson, Baldur; Helgi Elíasson,
Árnes; Einar Stefánsson, Wynyard;
Haukur Sigbjörnsson, Leslie; Kristján