Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 160
126
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
S. Halldórs frá Höfnum,
Ari G. Magnússon,
C. S. Thorláksson,
Thorsteinn Oliver,
Ragnar Stefánsson.
Umræður: G. S. Friðriksson og Carl
Thorláksson.
Lagt til af B. B. Olson, stutt af G.
S. Friðriksson, að viðtaka nefndarálitið.
Samþykt.
Álit nefndar þeirrar, er gera skyldi
tillögur um fyrirlestraferðir Arna Páls-
sonar var næst lesið og skýrt af séra
J. P. Sólmundsson, og fer hér á eftir:
Þingnefnd sú er skipuð var til þess að
íhuga fyrirætlanir um þær ferðir, sem
Þjóðræknisfélagið á von á að herra Árni
Pálsson muni fara fyrir sig um ýmsar
íslenzkar taygðir, hvetur þingið til þess
fyrst og fremst, að lýsa hérmeð fögnuði
sínum yfir því, að fá til sín þenna á-
gæta gest, Þingið tekur hérmeð tæki-
færið til þess að þakka honum fyrir
komuna, og metur þá komu svo mikils,
að það vill hérmeð gera það heyrum
kunnugt, að það finni sig í þakklætis-
skuld við hverja þá frændur vora á ætt-
jörðinni, sem hafa, á einn eða annan hátt
átt hlut að því að honum yrði mögulegt,
að gera oss þessa gagnlegu og ánægju-
legu heimsókn; sem og ennfremur
Canadiska Kyrrahafs Járnbrautarfélag-
inu, sem góðfúslega hefir veitt honum
ókeypis farbréf fram og aftur frá Eng-
landi hingað til lands, og hvað það, sem
hann þarf á brautum þess að ferðast hér
í landi.
National Council of Education hefir
með höndum ráðstafanir á ferðalagi
herra Árna Pálsssonar, öðrum en þeim
sem stjórn félags vors hefir nú þegar
auglýst svo sem hér segir:
Winnipeg, 27, 28, febrúar og 1. og 2.
marz.
Langruth 3. marz.
Selkirk 4. marz, kl. 8 síðdegis.
Gimli 5. marz kl. 8.30 síðdegis.
Riverton 6. marz, kl. 8 síðdegis.
Mikley 7. marz, kl. 8. síðdegis.
Hnausa 8. marz, kl. 2. síðdegis.
Árborg 8. marz, kl. 8 síðdegis.
Víðir 10. marz, kl. 2. síðdegis.
Framnes 10. marz, kl. 8. síðdegis.
Glenboro 12. marz, kl. 8. síðdegis.
Brú 13. marz, kl. 2. síðdegis.
Brown 14 marz, kl. 8. síðdegis.
Akra N. D. 17. marz, kl. 2. síðdegis
Mountain 17. marz, kl. 8. síðdegis
Gardar N D. 18. marz, kl. 8. síðdegis.
Upham N. D. 19 marz, kl. 8. síðdegis.
Piney, Man. 22. marz, kl. 3. síðdegis.
Oak Point, Man. 24. marz, kl. 8. síðdegis.
Lundar, Man., 25. marz, kl. 8 síðdegis.
Hayland, Man. 26. marz, kl. 8. síðdegis.
Steep Rock, Man. 30. marz, kl. 3. síðd.
Vegna tímaskorts var félagsstjórnin
tilneydd að gera sjálf þessa áætlun upp
á væntanlegt samþykki þingsins, og þessi
þingnefnd leggur nú til að það samþykki
sé hérmeð veitt.
Einnig leggur hún það til, að formanni
þessarar þingnefndar hr. Jóni J. Bíldfell,
sé hérmeð falið að sjá herra Árna Páls-
syni fyrir einhverri fylgd í öllum þessum
ferðalögum.
Ennfremur leggur þessi þingnefnd það
til, að þingið feli hérmeð stjórnarnefnd
sinni, að sjá um að þessi góði gestur
verði kvaddur á viðunandi hátt áður en
hann fer frá oss aftur.
Winnipeg, 28. feb., 1930.
J. J. Bíldfell,
J. K. Jónasson,
Thórður Bjarnason,
Rósm. Árnason,
J. P. Sólmundsson,
Th. J. Gíslason,
T. H. Sigbjörnsson.
S. H. frá Höfnum lagði til, B. Finns-
son studdi, að nefndarálitið væri við-
tekið. Samþykt.
S. H. frá Höfnum áréttaði þá tillögu
nefndarinnar, um að greiða Árna Páls-
syni þakkaratkvæði fyrir ferðir hans og
starf i þágu félagsins. Því til samþykkis
reis þingheimur með lófataki úr sætum.
Séra R. E. Kvaran hóf máls á því, að
á þessu ári sé Manitobafylki að búa sig
undir minningarhátíð — 60 ára afmæli
sitt — og í því sambandi sé verið að
víða saman í sögu fylkisins. Kvað ekki
mega hjá líða að íslendingar létu sig
slíkt varða. Lagði til að málið væri tekið
á dagsskrá. S. H. frá Höfnum studdi.
að forseti skipaði 3 manna nefnd í málið.