Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 83
Eftir J. Magnús Bjarnason.
Með Eggerti Jóhannssyni er til
nioldar hniginn einn hinn mætasti
og vinsælasti maður, sem uppi hefir
verið með Vestur- íslendingum, og
einn þeirra manna, sem mest og
bezt tóku þátt í því, að viöhalda
íslenzkri tungu hér vestan hafs og
sporna við því, að íslenzkt þjóðerni
hér f landi hyrfi á svipstundu eins
og dropi í sjóinn. — Eg ætla ekki
að fara að skrifa æfisögu hans, né
segja frá starfi lians í þágu vestur-
íslenzkrar blaðamensku, sem hann
var svo lengi viðriðinn. En mig
langar til að fara nokkrum orðum
um þá viðkynningu, sem eg hafði
af honum, og lýsa honum eins og
hann kom mér fyrir sjónir og reynd-
ist mér.
Eggert var fæddur að Vindheim-
um í Skagafirði 1. nóvember 1860.
Eaðir hans var Jóhann (d. 1919)
Jóhannsson bónda á Vindheimum,
Jóhannessonar hrepþstjóra á Víði-
völlum í Skagafirði, Eggertssonar
lögréttumanns á Ökrum, er var af
hinni alkunnu Svalbarðsætt og
kominn í beinan karllegg frá Magn-
usi hinum prúða., sýslumanni á Bæ
a Rauðasandi, Jónssonar á Sval-
barði, Magnússonar. En móðir Eg-
gerts Jóhannssonar var Árnfríður
(d. 1876) Jóhannesdóttir, og voru
þau hjónin Jóhann og Arnfríður ná-
skyld. Jóhann var tvíkvæntur og
hét seinni kona hans Guðbjörg
Eyjólfsdóttir. Er dóttir þeirra Guð-
rún Jónína í Seattle, Wash., kona
Árna Sumarliðasonar gullsmiðs,
Sumarliðasonar. En þau af systkin-
um Eggerts, er eg veit um, eru þessi:
Árni, bóndi við Hallson, N. Dakota,
kvæntur Önnu dóttur Björns Jóns-
sonar frá Sleitustöðum í Skagafirði
og Sigríðar Þorláksdóttur; Árnfríð-
ur, ekkja Jóhanns Árnasonar frá
Krithóli; og Hólmfríður Rósa (d. í
Seattle, Wash., 1928), er átti Pál
Ólafsson frá Litladalskoti í Skaga-
firði. Öll voru þau systkinin vel
gefin og mannvænleg og mikils
metin af öllum, er kynni höfðu af
þeim.
Eggert Jóhannsson fluttist með
foreldrum sínum vestur um haf
sumarið 1876, og kom til Winnipeg
8. ágúst, og var hann þá á sextánda
árinu. Faðir hans settist að við ís-
lendingafljót þá um haustið, og bjó
þar þangað til 1881, að hann fluttist
til Dakota og nam land nálægt
Hallson í Pembina County. Eggert
dvaldi í Nýja-íslandi bóluveturinn
(1876-7). Þá ium veturinn dó móð-
ir hans. Eftir þann vetur fór hann í
vinnu til hérlendra manna, og vann
algenga vinnnu þangað til í júlímán-
uði 1883, að hann tók til starfa við
vikublaðið “Leif”; og var hann eftir
það ritstjóri við íslenzkt blað, þang-
að til í júnímánuði 1897, að hann
hætti með öllu blaðamensku. Um
tvö ár kendi hann við alþýðuskóla
í Nýja-íslandi. En í aprílmánuði
1900 komst hann að skrifstofustörf-
um í landskjalastofu (Land Titles