Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 148
114
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISPÉLAGS ÍSLENDINGA
Alls, 79 börn frá 42 Heimilum.
Flest eru börn þessi á aldrinum frá
5—12 ára. Þar af 15 fluglæs, 18 dável
lesandi, og hin á mismunandi kunnáttu
stigum.
Laugardagsskóla höfum við undirrituð
einnig haldið uppi á þessum vetri. —
Eina klukkustund á hverjum laugardegi.
Hafa þá kennslu sótt yfir 50 börn,
en reglulega að meðaltali um 30.
Næga kennslukrafta höfum við haft
að þessu sinni frá fólki allmörgu, er af
framúrskarandi góðfýsi hefir lagt fram
tíma sinn og krafta bæði nú og á undan-
förnum árum. Á það einróma þökK
allra aðstandenda fyrir verk sín.
Sýrsla þessi leggist fram með öðrum
starfsskýrslum Fróns fyrir forseta og
stjórnarnefnd aðalfélagsins á næsta árs-
þingi.
Virðingafylst,
Ragnar Stefánsson,
Jódis Sigurðsson.
Forseti las þá skýrslu frá deildinni
“Island” Brown:
Brown, Man. feb. 14., 1930
Séra Jónas A. Sigurðsson,
Selkirk, Man.
Kæri vinur:—
Þjóðræknisdeildin Island, að Browr.
P. O., Man., hafði 7 fundi á árinu 1929,
hefðu orðið fleiri en vegna frosthörku
og erviðra vega varð aðeins 1 fundur
frá vetrarbyrjun til ársloka. Störf deild-
arinnar hafa gengið vel á árinu sem leið,
fundir verið skemtilegir oft og aðsókn
að fundunum frekar góð.
1 árslok 1929 voru félagslimir fullorðn-
ir 33; unglingar 4; börn 14; alls 51. 4
félagar hafa flutt burt og þar afleiðandi
sagt sig úr deildinni, 1 nýr meðlimur
gengið í deildina.
Á ársfundi sem haldinn var i janúar
1930 voru eftirfylgjandi kosnir i embætti:
Jón B. Johnson, forseti; Jóhannes H.
Hunfjörð, ritari; T. O. Sigurðsson, gjald-
keri; Mrs. Th. J. Gíslason, fjármálarit-
ari.
Með vinsemd þinn einl.
Thorsteinn J. Gíslason,
Skýrsla deildarinnar “Harpa” Winni-
pegosis var þá lesin af forseta.
Skýrsla þjóðræknisdeildarinnar Hörpu.
Winnipegosis, Man. yfir árið 1929. 1
gerðabókinni eru 3 fundir fyrir það ár.
Aðalársfundur 8. apríl þessum fundi
stýrði Ármann Björnsson í fjárveru for-
seta. Á þessum fundi var gamla nefndin
kosin öll að undanteknum G. F. Jónas-
syni sem var varaforseti, enn þá fluttur
til Winnipeg og búsettur þar; í það em-
bætti var bróðir hans kosinn Snorri
Jónasson, hann er einnig bókavörður
deildarinnar. Á þessum fundi var kosin
5 manna nefnd til að sjá um að 1 arð-
berandi samkoma yrði haldin fyrir Þjóð-
ræknisdeildina það ár.
Annar lögmætur fundur var haldinn
24. júni. Á þeim fundi var rætt um að
fá Jón tónskáld Friðfinnsson hingað til
að kenna unglingum söng. Nefndinni, er
kosin var á ársfundi hafði ekkert orðið
ágengt með störf sín í þágu deildarinn-
ar, svo langt og þá var komið, hafði
kvörnin Grotta malað grjót i staðinn fyr-
ir gull. Varð því deildin að hætta við
söngkensluna sökum efnaskorts, og féll
svo það áhugamál í fölva.
Þriðji fundur var haldinn 29. júlí. Á
þeim fundi var staddur séra Jónas A. Sig-
urðsson. Fjársöfnunarnefnd deildarinnar,
sem hér að ofan er minst, hafði þá full-
komnað starf sitt og haldið samkomu í
samkomuhúsinu Rex hér í bænum; arður
af henni var 28 dollarar að frádregnum
kostnaði. Var sú upphæð gefin veikum
manni, einum meðlim deildarinnar Hörpu.
Þetta, sem hér að ofan er sagt, mun
vera hið helzta af gerðum deildarinnar
Hörpu á árinu 1929.
Winnipegosis, 22. febr. 1930.
F. Hjálmarsson, ritari.
Hér fylgir afrit af kafla úr bréfi til
forseta.um starfsemi þjóðræknisdeildar-
innar Snæfell að Churchbridge, Sask.
Deildin Snæfell að Churchbridge,
Sask.
Aðalfundur 20. febr. 1930. Forseti
Kristján Jónsson; ritari, Einar Sigurðs-
son. Deildinni hefir vaxið fiskur um