Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Blaðsíða 110
76
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
kaupsiði á íslandi. Fréttaritari frá
Cleveland News hafði tekið mynd
af henni, og spurt hana spjörunum
úr. Mrs. Hoyden hafði látið einn af
fréttariturunum skilja það á sér, að
tengdasonur sinn væri af ætt Banda
ríkja forsetans með því nafni —
auðvitað mundi hún segja á morg-
un að það væri rangt eftir sér haft!
Hún trúði Ástu fyrir því að eitt af
blöðunum mundi hafa hálfa síðu af
fréttum og myndum af brúðkaup-
inu, en auðvitað gat hún þess ekki
að sama blað mundi hafa heilsíðu
auglýsing um ágæti Hoyden Handy
Hardware Store Inc. — Það var
auðvitað aðeins einkennileg tilvilj-
un!
Amma var þreytuleg og óstyrk
iþegar dóttir hennar og Mr. Burton
leiddu hana á milli sín, inn í stofu
þeirra mæðgnanna, og hjálpuðu
henni að setjast í grænklædda stól-
inn. Mr. Burton afþakkaði boð Ástu
um að standa við í þetta sinn. Hann
kvaddi ömmu hlýlega, og ámálgaði
við hana að hvíla sig nú vel. Ásta
fylgdi honum til dyra.
“Nú er alt klappað og klárt með
fimtíu þúsund dala sjóðinn, sem eg
var að minnast á um daginn.
“Já?” sagði Ásta eins og úti á
þekju.
“Ekkert annað eftir en að bjóða
íslenzku stjórninni hann á Afmælis-
hátíð Alþingis.’’
“Ekkert annað eftir.” — Endur-
tók Ásta eins og í leiðslu.
“Eg hefi ákveðið að sjóðurinn
skuli heita Mary Burton’s Founda-
tion. Skal verja vöxtum til bóka-
kaupa, en höfuðstól má aldbei
skerða Hér er afrit af gjafabréfum
og reglugjörð sjóðsins. Eg er að
hugsa um að-------”
“Guð minn góður! Hvað er nú
þetta?’’ Ásta iþaut til og opnaði
stofuna.
Amma Sveinsson lá meðvitundar-
laus á gólfinu. Þau lutu bæði ofan
að henni.
“Það er aðeins yfirlið! — Eg ætla
að ná í vatn og —’’
“Betra að síma strax til Dr.
Smith.”
Mr. Burton lagði eyrað að hjarta
Ömmu, lyfti augnalokunum; tók
vinstri hönd hennar og þrýsti koss
á hana. Hann tók eftir að hægri
hönd hennar lá ofan á litlu kveri,
tók það upp, leit á það: Viðskifta-
bók — Cleveland Trust Co. — út-
tekið 26. jan, átta hundruð dalir.
Hann hristi höfuðið og stakk bók-
inni í vasa sinn.
“Dr Smith kemur undireins. Er
hún að rakna við?” Rödd Ástu
titraði.
Mr. Burton stóð á fætur, rétti
Ástu, báðar hendurnar og sagði:
“Amma Sveinsson er ------- farin
heim.”