Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 79

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 79
Frá Guðmundi Friðjónssyni og sögum hans 61 baki og sakaði ekki. ‘ ‘ Tillmgalíf ’'’ 1915 (skrifuð 1909), “Heiðríkja hugans ’ ’ 1921 og' “Jólakarfan” 1934 eru um konurnar með Sig- ynar-eðlið, sem fórna sér fyrir sjúklingana. Dálítið annars eðlis eru sögurn- ai' af fólkinu, sem “verður úti” á mannlífsins heiði; þar eru sögu- “hetjurnar” ekld lengur hetjur, heldur meinlausar verur, eins og i’júpan, sem frýs í hel á gaddinum, ef fálkinn slær hana ekki eða hinn drápgjarni maður. Aftur eru það helzt konur, sem hér hafa fulla samúð skáldsins: elzta sagan er “Sigrún” 1896; síðan koma þær altaf öðru hvoru: “Sigurveig í Austurhlíð” 1919, tæringarveik stúlka, sem bíður dauðans í föður- garði;‘ ‘ Náttmál ’ ’ 1919 , um Lilju frá Klöpp, stúlkuna, sem er á leið iffff í eyðimörk sölnaðra laufa og legst til hinstu hvíldar í hellisskúta, ffieðan eilífðin úti fyrir deplar sín- fftn stjörnuaugum; “Alfheiður” 1921, sem unnustinn lætur fyrir Róða; “Bergmál” 1921, um sveita- stúlkuna, sem ann og' deyr á Yífils- stöðum, án þess að nokkur gefi því gaum. Vafalaust hefir reynsla Gruðniundar sjálfs, er hann horfð- ist í augu við dauðann á yngri ár- urn, gjört hann óvenjunæman fyr- lr örlögum þessara olnbogabarna hamingjunnar. Kæst dauða var það sárast, fyrir Þá, sem ekki vildu, að rífa sig' upp ffieð rótum af æskustöðvunum og fara til Vesturheims. Það hafði margur maðurinn orðið að gjöra á ffppvaxtarárum Guðmundar, enda lýsir hann tilfinningum þeirra á- takanlega í sögunum “Andvaka öldungsins” 1923 og “Kveðja Svanfríðar” 1923. 1 sögum þeim, sem nú hafa verið taldar, má ætla að Guðmundur hafi komist alla leið “inn að hjartanu”, enda virðist hann hér ná hæs't í list sinni. Það er eins og þeir smíðis- gripir hans verði fullkomnastir, sem hann verður að leggja í afl; liitt sem kaldliamrað er, dugir ekki. Af sömu ástæðu lætur honum vel að lýsa lieimilisböli, þar sem annað- livort hjónanna eða bæði liafa þungan kross að bera, annaðhvort fyrir það, að illa var til stofnað hjónabandsins í fyrstu, eða. af öðr- um orsökum, drykkjuskap bónda eða hranaskap, eyðslusemi kon- unnar og ónærgæ'tni á báða bóga. Um þetta efni var skáldsagan “ Ólöf í Ási”, saga um meinbuga- ást og ástlaust hjónaband, sem vakti eigi alllitla athygli og andfið siðferðispostula þeirrar tíðar. Um það efni eru enn fremur “Heið- ríkja hugans” 1921, “Ofríki end- urminninganna ” 1921, “Hólm- ganga” 1921 og' “Skúraskin” 1923. Góðan hlut eiga og' konurnar í sögunni “Sundrung og' sættir” 1919 að því að setja niður ná- grannakrit og fáþykkju þá utan og innan heimilisins, sem af honum leiðir. Það sem lielzt mætti finna að þessum flokld sagna Guðmund- ar er tilfinningasemi þeirra, sem orðið getur of mikil á stundum. Einkum spillir hún að mun sögu Ólafar í Asi. Enn eru ótaldar dýrasögur Guð- mundar, og eru þær þó eitt af því fyrsta sem hann bar við að rita, vakinn til þess af dæmi þeirra Þorgils gjallanda og Alexander Kiellands. Komu fyrstu sögur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.