Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Blaðsíða 145
Seytjánda ársþing Þjóðrœknisfélagsins
127
Á. P. Jóhannsson lagöi til og séra Theo-
dore SigurSsson studdi, aS skýrslan sé viS-
tekin eins og lesin. Samþykt.
Dagskrárnefnd lagSi þá fram eftirfylgj-
andi skýrslu:
Dagskrárnefnd.
Nefndin leggur til aS fylgt sé auglýstri
dagskrá aS viSlögSum skýrslum frá milli-
þinganefndum sem eru: RithöfundasjóSs
söfnunarnefnd, Þingmálanefnd (Commit-
tee on Resolutions) Útnefningarnefnd og
Minjasafnsnefnd.
24. febr. 1936.
Rögnv. Pétursson J. Janusson
Á. P. Jóhannsson.
DAGSKRÁ:
1. Þingsetning
2. Skýrsla forseta
3. Kosning kjörbréfanefndar
4. Kosning dagskrárnefndar
5. Skýrslur embættismanna
6. Skýrslur deilda
7. Skýrslur milliþinganefnda
8. ÚtbreiSslumál
9. Fjármál
10. Fræöslumál
11. Samvinnumál
12. Útgáfa Tímarits
13. Bókasafn
14. Kosning embættismanna
15. Lagabreytingar
16. Minnisvarðamál
17. Ný mál.
Richard Beck lagöi til og Mrs. B. E.
Johnson studdi, að skýrslan sé viötekin
eins og lesin. Samþykt.
Skýrslur deilda voru þá lesnar og fylgja
hér með:
Hagskýrsla þjóðrœknisdeildarinnar
“Snæfell”
Churchibridge, Sask. 21. febr. 1936.
Deildin hefir leitast viö að halda í horf-
hiu, eftir föngum, síðastliðið ár. Starfs-
fundir hafa verið haldnir fjórir á árinu
°g ein skemtisamkoma. Nokkur undan-
farin ár hefir deildin haldið eina alíslenzka
samkomu að haustönnum loknum, og hafa
unglingarnir tekið þátt í skemtiskránni á
þeim samkomum, engu síður en eldra fólk-
ið.
Geta mætti þess, þó þjóðræknisdeildin
ætti þar ekki sérstaklega hlut að máli, að á
síðastliðnu sumri var haldið hátiðlegt
fimtíu ára afmæli íslenzks landnáms í
Þingvalla og Lögbergs bygðum. Mun ná-
lega hvert mannsbarn úr bygðum þessum
hafa verið á hátíðinni og gizkað er á að
aðkomumenn hafi verið þar eins margir
eða fleiri en heinrafólkið. í sambandi við
hátíðina var lialdin dálítil sýning á ís-
lenzkum munum, sem landnemarnir höfðu
haft með sér heiman frá íslandi. Er ótrú-
lega mikið til að slíkum munum eftir hálfr-
ar aldar dvöl í Vesturheimi. Vakti sýning-
in allmikla athygli. Enda ös umliverfis
sýningarstúkuna allan daginn.
Af hálfu þjóðræknisfélagsins mætti þar
varaforseti þess prófessor Richard Beck.
Flutti hann kveðju frá félaginu og jafn-
framt skörulegt erindi fyrir minni íslands
Mega slíkar minningarsamkomur teljast
veigamikill þáttur í þjóðræknisstarfinu.
Bókasafnið hefir verið aukið talsvert á
árinu, og eru bækurnar mikið lesnar af
félagsmönnum.
Deildin telur nú 18 skuldlausa meðlimi.
Stjórnarnefnd: forseti B. E. Hinriksson,
ritari E. Sigurdsson, féhirðir F. G. Gísla-
son. Meðstjórnendur: K. Jolmson, J.
Gíslason, G. J. Markússon og M. Hinriks-
son.
Vinsamlegast,
Binar Sigurðsson,
ritari.
Dr. Rögnvaldur Pétursson lagði til og
Á. P. Jóhannsson studdi, að skýrslan sé
viðtekin með þökkum og bókuð. Samþykt.
Arsfréttir deildarinnar “Iðunn” að
Leslie, Sask.
Herra forseti,
Háttvirti þingheimur!
Eins og flestum íslendingum vestan hafs
mun kunnugt, andaðist þetta síðastliðið ár
(1935) hinn mæti og velþekti íslendingur
Wilhelm H. Paulson. Var hann lieiðurs-
meðlimur deildarinnar og sá eini er þann
heiður hefir hlotið í þessari deild. Paulson
heitinn var einn af stofendum þessarar
deildar og bar hag hennar alt af fyrir
brjósti, eins og alls þess, er íslenzkt var.
Fáir munu hafa átt eins almenn ítök í
liúörtum manna eins og hinn látni vinur
vor, og mun lengi verða minst með sökn-