Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Blaðsíða 155
Seytjánda ársþing Þjóðrœknisfélagsins
137
Fjármálanefndin aShyllist þá tillögu
fræöslumálanefndarinnar “aö þingið feli
stjórnarnefndinni að hvetja til þess, að
vestur-íslenzkum æskulýð sé veitt meiri
fræðsla um landafræði Islands og sögu í
aðaldráttum”; en þar sem nefndin álítur
að fullnægjandi upplýsingar viðvíkjandi
íslenzkum filmum og þar að lútandi kaup-
skilmáluin séu ekki fyrirliggjandi nú sem
stendur, leyfir hún sér hér með að ráða
þinginu til þess, að vísa þessum tillögu-lið
fræðslumálanefndarinnar til framkvæmd-
arnefndar Þjóðræknisfélagsins til nánari
íhugunar og til þeirra framkvæmda, sem
nefndin kann að álíta hagkvæmlegar.
Fjármálanefndin er ekki mótfallin þeirri
tillögu fræðslumálanefndarinnar, sem fer
fram á verðlauna samkepni fyrir ungt fólk
af íslenzku bergi brotið í sambandi við
ritgjörðir á íslenzku og ensku um íslenzk
efni, svo framarlega sem slíkri samkepni
yrði svo haganlega komið fyrir, að hún
gæti náð tilsetluðum tilgangi. En þar sem
nefndin álítur það varhugavert að gjöra
fullnaðarúrskurð þess efnis án frekari
undirbúnings, leyfir hún sér einnig hér
með að ráða þinginu ennfremur til þess,
að fela stjórnarnefndinni þetta mál til
rannsóknar og meðferðar í því horfi, sem
hún álítur happadrýgst.
Winnipeg, 26. febr. 1936.
Á. P. Jóhannsson S. W. Melsted.
Séra Jakob Jónsson lagði til og Dr.
Richard Beck studdi, að álitið sé tekið
fyrir lið fyrir lið. Samþykt.
Séra Jakob Jónsson lagði til og séra
Guðm. Árnason studdi, að fyrsta grein sé
viðtekin eins og lesin. Samþykt.
Dr. Rögnvaldur Pétursson lagði til og
S. Vilhjálmsson studdi, að þetta mál sé
borðlagt á þessu stigi. Samþykt.
Bindindismál.
Eagt fram af þingmálanefnd:
Þar sem að það er vitanlegt öllum
mönnum, að áfengisnautn á öllum stigum
er til hindrunar menningarlegri og félags-
legri þróun, leyfi eg mér að leggja til. að
“Þíjóðræknisfélagið” mæli með við rit-
stjóra, aö bindindisfræðsla sé veitt börnum
og unglingum í dálkum barnablaðsins
“Baldursbrá,” eftir því sem rúm leyfir.
Salóme Backman.
Séra Guðm. Árnason lagði til og R.
Beck studdi, að tillagan sé viðtekin. Sam-
þykt.
Ný mál.
Dr. Rögnvaldur Pétursson gat þess, að
um nokkur ár hefði verið íslenzk bókadeild
við Carnegie safnið hér í borg og pen-
ingar lagðir til íslenzkra bókakaupa úr
Carnegie sjóðnum. Væru nú flestar þess-
ar bækur glataðar og eyðilagðar. Stæði
nú til að borgaranefnd yrði sett í sambandi
við Carnegie bókasafnið og kærnu þá til
greina kaup útlendra bóka þar á meðal ís-
lenzkra. Hefðu 2 íslenzkar konur gengist
fyrir því undanfarin 2 ár að ráðstafanir
væru gerðar með íslenzkar bækur við
safnið, þær Mrs. Sigrún Líndal og Miss
Bonnie Sigurðsson. Hefðu þessar konur
gjört fyrirspurn til sín hvort þingið vildi
gjöra eitthvað í þessu máli, og þessvegna
legði hann það fyrir þing.
Dr. Richard Beck lagði til og séra B.
Theodore Sigurðsson studdi, að þriggja
rnanna nefnd sé skipuð í málið. Samþykt.
Forseti skipaði í nefndina Dr. Rögnvald
Pétursson, Mrs. P. S. Pálsson og séra
Jakob Jónsson.
Var nú liðið að hádegi og gerði Dr.
Richard Beck tillögu er séra B. Th. Sig-
urðsson studdi, að fundi sé frestað til kl.
2 e. h. Samþykt.
Forseti setti fund kl. 2 e. h. Síðasta
fundargjörð var lesin og samþykt sam-
kvæmt tillögu frá Mrs. I. Goodmanson, er
A. J. Skagfeld studdi.
Forseti skýrði þá frá að samkvæmt lög-
um félagsins færu nú fram embættismanna
kosningar og bað hann útnefningarnefnd
að leggja fram sínar tillögur. Útnefning-
arnefndin lagði fram nöfn þessara manna
í embætti og voru þeir kosnir gagnsóknar-
laust:
Forseti: Dr. Rögnv. Pétursson
Vara-forseti: Dr. Richard Beck
Skrifari: Gísli Johnson
Vara-skrif.: Sr. B. Theodore Sigurðsson
Féhirðir: Árni Eggertson
Vara-féhirðir: J. Walter Jóhannsson
Fjármálaritari: Guðmann Levy
Vara-fjármálarit.: S- W. Melsted
Skjalavörður : Séra Philip M. Pétursson.
A. J. Skagfeld gjörði tillögu, að þing-
heimur risi úr sætum í þakklætis viður-