Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Síða 107
Aldarfjórðungsafmæli Háskóla íslands
89
þeim vandkvæðum. “Alþingi 1911
í'ak smiðsliöggiS á, þar sem það
veitti fé til háskólans í fjárlögun-
um fyrir árin 1912-1913 og skaut
mn í 5. grein fjáraukalaga fyrir
1910-1911 lið þess efnis, að Há-
skóli íslands skyldi settur 17. júní
1911 (á aldarafmæli Jóns Sigurðs-
sonar), en háskólakennarar þó ekki
taka laun fyr en frá 1. október
s. á. ”
Kristján Jónsson, þáverandi
ráðherra, útvegaði staðfestingu
konungs á fyrirmælum fjárauka-
laganna 8. júní 1911, og var þá
ekkert lengur því til fyrirstöðu, að
háskólinn yrði stofnaður, eins og
ákveðið hafði verið, á aldarafmæli
forseta.
Stofnunarhátíð Háskóla Islands,
er haldin var, eins og til stóð, á
aldarafmælisdegi Jóns Sigurðs-
sonar, var hin virðulegasta, og
lýsir dr. Ágúst H. Bjarnason, er
var einn af hinum fyrstu háskóla-
kennurum, henni á þessa leið:
“Stundu fyrir hádegi þann dag
(þ- e. 17. júní, 1911) söfnuðust
raenn saman í hátíðasal Menta-
skólans til þess að vera viðstadd-
lr afhjúpun á olíumynd af Jóni
Signrðssyni. Síðan gengu menn
fylktu liði í sólheiðu veðri niður
Skólabrú niður í Alþingishús. En
á hádegi liófst stofnunarhátíðin í
neðri deildar sal Alþingis, að við-
stöddum þeim mentamönnum, sem
Í>1 náðist, svo og erindrekum er-
lendra ríkja.
kyrst var sunginn kvæðaflokk-
Ur, er Þorsteinn skáld Gríslason
hafði ort, undir forustu Sigfúsar
Einarssonar dómkirkjuorganista,
°§) síðan flutti þáverandi landrit-
ari, síðar ráðherra Klemens Jóns-
son, kveðju konungs svohljóðandi:
‘Um leið og' eg á þessum deg'i
minninganna samfagna öllum ís-
lendingum í endurminningunni um
hinn mikla leiðtoga og málsvara
þjóðarinnar, bið eg' yður um að
bera fram óskir mínar um, að há-
skóli sá, sem stofnaður er þenna
dag til minningar, um hið mikla
æfistarf hans, megi verða vísind-
unum til hróss og' landi og lýð til
nyt.ja. ’
Síðan rakti landritari sögu há-
skólamálsins, og með því að fjár-
lög, staðfest 8. s. m., lieimiluðu
stofnun hans, afhenti hann málið
hinu nýskipaða háskólaráði.
Þá flutti fyrst rektor háskólans,
prófessor, dr. pliil. Björn Magnús-
son Ólsen hátíðarræðu um mark-
mið og starf háskóla bæði að fornu
og nýju og lýsti því yfir, að Há-
skóli íslands væri settur á
stofn.”*)
Var ræða rektors hin merkileg-
asta. Hann lagði áherzlu á, að aðal
markmið hvers skóla væri þetta
tvent, “að leita sannleikans í
hverri fræðigrein fyrir sig” og
“að leiðbeina þeim, sem eru í sann-
leiksleit, hvemig þeir eigi að leita
sannleikans í hverri grein fyrir
sig'. ” Með öðrum orðum: “liáskól-
inn er vísindaleg rannsóknarstofn-
un og vísindaleg fræðslustofnun.”
Ennfremur benti ræðumaður á, að
flestir háskólar hafa hið þriðja
markmið, sem er það, “að veita
mönnum þá undirbúningsmentun,
sem þeim er nauðsynleg, til ]æss að
þeir geti tekist á hendur ýms em-
bætti eða sýslanir í þjóðfélaginu.
Þetta starf liáskóla er mjög nyt-
*)AlþingishátíðarblaS Morgunbl., bls. 10.