Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 130
112
Tímarit Þjóðrœknisfélags Íslendinga
austur-íslenzkri stúlku. Lofaði
hann konuefninu framtíðarlieimili
í íslenzkri bygð hér vestra. Eg var
búinn að frétta að land móður
minnar beitinnar væri til sölu, og'
þessvegna er eg hingað kominn.
Eg er tekinn að eldast, er ekkju-
maður og stend þolanlega vel að
vígi efnalega. Hefi því hugsað
mér að setjast í helgan stein, hjá
yngsta syni mínnm og hinni aust-
ur-íslenzku tengdadóttur minni —
hér í bygðinni. Hjartfólgnasta þrá
lífs míns nær þá að rætast: Að
eyða ellinni með íslendingum, við
lestur ísl'enzkra bóka!
Eg ann þeim ungu. Ungum
Yestur-íslendingum megum við
ekki bregða um ræktarleysi. Iíið
sama ræktarleysi ríkir á Islandi,
því eigi gráta Austur-lslendingar
til eilífðar þær fáu hræður, er til
Ameríku flulttu. Það ræktarleysi
'Stafar af ókunnugleika. Ungir Is-
lendingar, beggja megin hafs,
þurfa að þekkjast—til að elskast!
Látum þá ungu tengjast bræðra-
og systraböndum yfir hafið.”
Er Þórður steig' ofan af ræðu-
pa'llinum, hópuðust eldri bygðar-
menn og konur í kring nm hann og
keptust við að taka í hönd hans.
Hallfríður gamla Hólm ruddist í
gegnum mannþröngina, rauk upp
um liálsinn á Þórði og rak að lion-
um rembingskoss.
Betra var seint en aldrei.
Vonin
Þú ert ljósið, sem lýsir mér veginn.
Þú ert lífgjafi þreyttri sál.
Þú ert aflið, sem ekkert fær staðist.
Þú ert andvari hugsun og mál.
Þú ert björt eins og' blikandi stjarna.
Þú ert blómið, sem lífinu nær.
Þú ert sjávarins seiðandi tónar.
Þú ert sumarsins ylríki blær.
Þú ert úthafsins undra niður.
Þú ert ómur frá fjarlægum geim.
Þú ert leiftur, sem ljómar og hverfur
Þú ert lífið í jarðneskum heim.
Elínborg Lárusdóttir.