Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Blaðsíða 141
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 2012 141
róSa KriStín JúlíuSdóttir
Kennaradeild HáSKólanS á aKureyri
Uppeldi og menntun
21. árgangur 1. hefti 2012
Hugarhættir vinnustofunnar
Lois Hetland, Ellen Winner, Shirley Veenema og Kimberly M. Sheridan. (2007).
Studio Thinking: The real benefits of visual arts education. New York: Teachers
College Press. 120 bls.
Margir líta svo á að myndlistakennsla hafi jákvæð áhrif á nám í öðrum greinum, en
fáir hafa útskýrt hvers vegna. Í bókinni Studio Thinking: The real benefits of visual arts
education (2007) kynna höfundarnir, Lois Hetland, Ellen Winner, Shirley Veenema og
Kimberly M. Sheridan, niðurstöður fyrstu rannsóknar sem gerð hefur verið á hugsana-
venjum nemenda í myndlistanámi. Þessar hugarvenjur vinnustofunnar kalla þær
studio habits of mind en í þessari umfjöllun verður notað hugtakið hugarhættir. Höf-
undarnir leggja áherslu á að slíkir hugarhættir hafi jákvæð áhrif á nám í öllum náms-
greinum. Bókin færir myndlistakennurum, og öðrum kennurum, rannsóknarmiðað
tungutak sem lýsir því sem þeir ætla að kenna og því sem nemendur læra og hefur
þannig áhrif á þróun kennslu myndlistakennara og fágun kennsluhátta. Auk þess
getur bókin frætt almenna kennara um kennsluhætti myndlistakennslu.
rannsóKn HEtlanD Og félaga Og aðDraganDi
HEnnar
Árið 2000 skoðuðu Winner og Hetland fjölda rannsókna á tengslum listkennslu og sér-
staks árangurs í akademísku námi. Niðurstöðurnar birtust í Journal of Aesthetic Education
(Winner og Hetland, 2000). Þar kemur fram að í sjö af tíu slíkum safngreiningum var
ekki að finna orsakatengsl milli listgreina og betri árangurs í bóklegu námi. Af þessu
drógu þær þá ályktun að staðhæfingar um að nám í listum leiddi til betri árangurs
í öðrum greinum stæðu ekki á traustum vísindalegum grunni. Þær ákváðu að áður
en hægt væri að rannsaka hvort nám í listum/myndlist hefði yfirfærslugildi þyrfti
að rannsaka nám og kennslu í listum, það er hvað kennarar kenna, hvernig þeir fara
að því og hvað nemendurnir læra. Þær, ásamt Sheridan og Veenema, hófu rannsókn
á því hvernig góðri kennslu í sjónlistum er háttað og segja frá rannsókninni í bókinni