Hugur - 01.01.2008, Page 8

Hugur - 01.01.2008, Page 8
6 Inngangur ritstjóra sjálfum sér og áliti annarra á þeim, í stað þess að helga sig viðfangsefninu sem slíku. I grein sem ber heitið „Siðferði, hugsun og ímyndunarafl" gagnrýnir Jón Asgeir Kalmansson siðfræðinga samtímans fyrir að taka lítið sem ekkert tillit til þáttar ímyndunaraflsins í nálgunum sínum, heldur byggja á þurrum kenningum, megin- reglum og beitingu þessara meginreglna. Siðfræðingar virðast óttast að ímyndun- araflið dragi úr hlutlægni siðfræðinnar og geri hana duttlungafulla en Jón segir þessa vanrækslu hennar byrgja okkur siðferðilega sýn og í raun firra siðfræðina frá mannlegu lífi. Hann sýnir hversu mikilvægt hlutverk ímyndunaraflið hefur leikið í sögu heimspekinnar og setur fram hugmyndir um hvernig megi nýta sér það í siðfræðilegum rannsóknum. Hvers eðhs er sá veruleiki sem hagfræðin fæst við? Þetta er ein þeirra grund- vallarspurninga sem Stefán Snævarr varpar fram í umíjöllun sinni um gildi hag- fræðinnar. Stefán kallar þennan veruleika „hagtextann". Hann er mannlegur merkingarveruleiki en ekki náttúrulegur lögmálsveruleiki eins og hagfræðin virðist gefa sér. Af því leiðir að viðleitni hagfræðinnar til að setja fram lögmál að fordæmi náttúruvísindanna er dæmd til að mistakast, enda hefur sýnt sig að forspárgildi hagfræðinnar er æði takmarkað. Stefán fjallar um þau margvíslegu áhrif sem túlk- unarfræði og skilningsfélagsfræði hafa haft á hagfræðina á undanförnum áratug- um og setur fram eigin útfærslu á „skilningshagfræði" sem nálgast viðfang sitt sem texta og leggur því fremur fyrir sig túlkun í stað þess að leita orsakaskýringa. Að þessu sinni hefur Hugur að geyma tvær greinar um bækur. Sú fyrri kann að virðast nokkuð „innmúruð" ef svo má segja, því þar fjaUar einn greinarhöfundur þessa heftis, Jón Ásgeir Kalmansson, um bók annars, Olafs Páls Jónssonar. Þetta endurspeglar þó fyrst og fremst öfluga virkni þessara fræðimanna um þessar mundir. Bók Ólafs Páls, Náttúra, vald og verðmœti, er heimspekileg greining á umhverfis- og lýðræðismálum þeim sem mikið hafa verið á döfinni á undanförnum árum, en hún hefur vakið mikla athygli jafnt innan sem utan íslensks fræða- heims. Síðari bókargreinin tekur á ádeiluritinu Bréfi til Maríu eftir Einar Má Jónsson sem gagnrýnendur hafa ýmist lofað óspart eða talið meingallað. Greinarhöfundar, þeir Davíð Kristinsson og Hjörleifur Finnsson, sem sjálfir hafa getið sér orð fyrir ögrandi skrif, taka þó annan pól í hæðina, rýna vandlega í heimspekilega þætti bókarinnar og gera meira að segja gagnrýna úttekt á þeirri gagnrýni sem hún hefur hlotið. Hvert svo sem endanlegt mat þeirra á bókinni kann að vera er ljóst að hún hefur veitt þeim nokkurn innblástur og þeir gera gaumgæfileg skil ýmsum þeim málefnum sem Einar Már bryddar upp á, til að mynda þjóðernishyggju, velferðarsamfélaginu, marxisma og nýfrjálshyggju. Þannig er greinin jafnframt prýðilegur „stökkpallur“ fyrir umræðu um samfélagsmál og er enginn vafi á því að hún mun vekja margvísleg viðbrögð meðal lesenda Hugar. Við hæfi er að vekja athygli á því að Hugur er nú kominn af táningsskeiði og verður tvítugur á árinu 2008.1 tilefni þessara merku tímamóta hyggst ritstjóri gera allt sem í hans valdi stendur til að koma næsta hefti út á sjálfu afmælisárinu og hvetur því heimspekinga nær og fjær að senda inn framlög hið fyrsta. Ennfremur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.