Hugur - 01.01.2008, Side 54

Hugur - 01.01.2008, Side 54
52 Jón A. Kalmansson í siðferðilegri hugsun. Lýsing staðreynda er ekki sjálfsagt mál og engar fyrirfram gefnar reglur geta ákvarðað það í eitt skipti fyrir öll hvernig á að lýsa staðreyndum. Sú lýsing er alltaf að verulegu leyti komin undir hugkvæmni okkar og skilningi á því hvað hefiir þýðingu og mikilvægi yfirleitt. Hins vegar leiðir gagnrýni Diamonds í ljós hve glámskyggnir heimspekingar geta verið á hlutverk ímyndunaraflsins í mannlegri hugsun. Margir þeirra tortryggja ímyndunaraflið, sjá það sem ógnun við skýra siðferðilega hugsun, uppsprettu óleysanlegs ágreinings, eða jafnvel tómra ímyndana og hindurvitna. Þótt slíkar áhyggjur séu ekki ástæðulausar þá virðist mér, líkt og Diamond, að afleiðingar þessarar tortryggni í garð ímyndunaraflsins verði þær að menn missi sjónar á eðli siðferðilegrar hugsunar - og mannlegrar hugsunar almennt - og geri hana í raun að einhverju öðru en hún með réttu er. Hugsun mannsins hefur alla tíð verið samofin virku ímyndunarafli, og án þess væri engin heimspeki svo orð væri á gerandi. Það er því við hæfi að hefja þessa skoðun á tengslum hugsunar, siðferðis og ímyndunarafls á heimspekinni sjálfri. Undrunin: Upphaf heimspekinnar Sá sem veltir fyrir sér tengslum hugsunar og ímyndunarafls gæti byrjað á að rifja upp þau orð Platons (Þeætetos, i55d) að undrun sé ástríða heimspekingsins og hún sé upphaf heimspekinnar. Sé haft í huga að undrun er ein birtingarmynd ímynd- unaraflsins, að án ímyndunarafls eða hugarflugs gæti mannskepnan ekki undrast, er vart hægt að hugsa sér afdráttarlausari staðhæfingu um tengsl hugsunar og ímyndunarafls en þessi orð Platons. Af þeim má ráða að maður sem er með svo takmarkað ímyndunarafl að hann kann eða getur ekki undrast sé ófær um að hugsa í fyllstu merkingu þess orðs. Einber rökhugsun megni ekki að gera mann að hugsandi veru, og heldur ekki sambland af vísindalegri athugun og rökhugsun. Sú staðreynd að við sem nú lifúm hneigjumst til að líta á hugsun nær eingöngu sem vísindalega og tæknilega hugsun væri því í augum Platons til vitnis um hnignun hugsunarinnar.9 Að hverju beinist undrun heimspekingsins samkvæmt Platoni? Orð Platons um undrunina eru fá og gefa ekkert svar við þessari spurningu. Því þarf að geta í eyður. Hannah Arendt bendir á að undrun heimspekingsins, eins og Platon skilur hana, varði aldrei aðeins einstaka hluti heldur vakni andspænis heildinni, því samræmi eða þeirri skipan alheimsins sem hvergi er beinlínis augljós, en má þó læra að greina í öllum sköpuðum hlutum.10 Arendt tengir þessa hugmynd um undrunina við aðra hugmynd sem á yfirborðinu virðist vera henni frábrugðin, en hún telur þó vera í eðli sínu hina sömu. Það er hugmyndin um að uppspretta heimspekilegrar undrunar sé sjálf tilvistin. Þá hugmynd mætti setja fram í spurnarformi líkt og 9 William James segir í bók sinni um heimspeki, Some Problems of Philosophy, að sögulega hafi heimspeki alltaf verið eins konar gagnkvæm frjóvgun fjögurra mannlegra hugðarefna, vísinda, ljóðlistar, trúarbragða og rökfræði. Með öðrum orðum, mannleg hugsun er alvarlega takmörkuð nema a/úVþessir fjórir þættir fái að njóta sín og verki hver á annan. William James. Wri/ings 1902-1910, New York: The Library of America 1987, s. 987. 10 Hannah Arendt, The Life of the Mind, San Diego: Harvest 1978, s. 143-144.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.