Hugur - 01.01.2008, Page 65

Hugur - 01.01.2008, Page 65
Siðferði, hugsun og ímyndunarafl 63 maður eiga von um sæmilega sátt er vænlegra að vænta lítils og láta veruleikann koma sér gleðilega á óvart, eins og hann sé furðuleg forréttindi: „Ema leiðin til að njóta jafnvel illgresis er að finnast maður óverður jafnvel illgresis"35 Þakklæti af þessu tagi er ekki dæmi um óhóflegt lítillæti eða óvirka viðtöku hlutanna. Hún er þvert á móti sá þáttur í virkni hinnar hugsandi veru sem gerir henni kleift að sjá lífið sem hnoss, líkt og Aristóteles lýsir í Siðfrœði Níkomakk- osar. En lífið sjálft er gott og ánægjulegt, enda sækjast allir eftir því og aðallega hinir góðu og sælu, því slíkum mönnum er lífið ákjósanlegast og h'f þeirra sælast afls. Og sjáandi skynjar að hann sér og heyrandi að hann heyrir og gangandi að hann gengur. Eins er farið með aðra virkni að eitthvað er til sem skynjar að við erum virk. Og ef við skynjum þá skynjum við að við skynjum og ef við hugsum skynjum við að við hugsum og sem við skynj- um að við skynjum eða hugsum, skynjum við að við erum til, því tilvistin var sögð vera að skynja eða hugsa. Og skynjun þess að við lifum tilheyrir því sem er ánægjulegt í sjálfu sér, því h'fið er eðli sínu samkvæmt gott, og ánægjulegt að skynja eitthvað gott sem er í manni sjálfum. Og lífið er ákjósanlegt og aðallega fyrir góða menn, enda er þeim tilvistin góð og ánægjuleg, því þeir njóta vitundarinnar um veru þess í þeim sjálfum sem er gott í sjálfu sér.36 Þessi orð Aristótelesar bera sem slík órækt vitni um afrek mannlegrar hugsunar, þ.e. mannlegs hugarflugs. Þau sýna þann eiginleika mannsins að geta verið „á kafi“ í lífinu sjálfu sem skynjandi og hugsandi vera - heyra hljóð, skynja form og liti, finna snertingu, hreyfingu, lykt, hita og kulda, hugsa, muna, ráðgera, aflt það sem tilheyrir lífi okkar sem líkamlegar verur - en geta um leið eins og séð slíka virkni úr fjarlægð, virt hana fyrir sér og séð að hún, tilvistin, tilheyrir því sem er gott og ánægjulegt í sjálfú sér. Hér er um eins konar annars stigs virkni að ræða, virkni hugans sem gerir okkur ljóst að við erum virk, að við lifúm, og gerir okkur þar með virk, lifandi í fyllsta skilningi þess orðs. Skilningur hjartans Eg hef hingað til rætt hvernig sá eiginleiki, eða skortur á eiginleika, að undrast tengist sambandi okkar við veruleikann og uppsprettu verðmæta og ánægju. En hvaða frekari þýðingu hefúr þessi afstaða fyrir siðfræðina, til dæmis fyrir afstöðu okkar til annarra og fyrir yfirvegun breytni okkar? Til að svara þessari spurningu er gagnlegt að hverfa aftur að umfjöllun Mary Anne Warren um nýburadráp sem minnst var á í upphafi. Afstaða Warrens byggist á þeirri hugmynd að það sem réttlæti viðhorf okkar og viðbrögð við hlutunum séu vissar staðreyndir um þá, þ.e. 35 Sjá G.K. Chesterton, Autobiography, rafræn útgáfa. 36 Sjá Aristóteles, Siðfrœði Nikomakkosar iiyoa-b, þýð. Svavar Hrafn Svavarsson, Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag 1995.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.