Hugur - 01.01.2008, Side 77

Hugur - 01.01.2008, Side 77
Hagtextinn 75 um nú hvort kenningar hagfræðinnar hafi forspárgildi. Frjálshyggjufrömuðurinn Milton Friedman hélt því fram að kenningar sem gera ráð fyrir fullkominni sam- keppni væru betri en aðrar kenningar. Vissulega er fullkomin samkeppni vart möguleg en kenningar sem gera ráð fyrir slíku hafa meira forspárgildi en keppi- nautar þeirra. Oftar en ekki eru vísindakenningar sem virðast fjarri veruleikanum betri en aðrar, m.a. vegna þess að þær hafa einatt mikið forspárgildi. Lítum á kenningu Galíleós um fall hluta. Við fyrstu sýn virðast þær fáránlegar því þær taka ekkert tillit til loftmótstöðu en hlutir falla jú yfirleitt í andrúmslofti. Kenningin er því veruleikafirrt og byggir á sértæku líkani þar sem ekki er gert ráð fyrir loft- mótstöðu. Samt hefur reynslan staðfest forspár hennar í mjög ríkum mæli. Góð er sú kenning hvers forspár eru staðfestar af reynslunni þótt kenningin sjálf virðist úr tengslum við veruleikann (Friedman 1979,18-35). En breski heimspekingurinn John Dupré segir að í himnalagi sé að gera ráð fyrir þessu ef a.m.k. annað af tvennu kemur til: I fyrsta lagi að enginn annar góður kostur sé til en sá sem kenn- ingin lýsi. I öðru lagi að reynslan staðfesti þær forspár sem leiða má af kenningunni. Gallinn er sá að svo er ekki. I einn stað eru til kenningar sem keppa við kenningar í anda Friedmans. I annan stað staðfestir reynslan ekki forspár hinna friedmönsku kenninga. Dupré bætir við að þetta gildi almennt um hagfræðikenningar, forspár- gildi þeirra sé lítið (Dupré 1993,363-378). Því miður gefur breski heimspekingur- inn engin dæmi um mislukkaðar spásagnir hagfræðinga. En skoskur starfsbróðir hans, Alasdair Maclntyre, tekur ómakið af honum. Skotinn hefur það eftir ein- hverjum hagspekingum að enginn hagfræðingur hafi séð fyrir þá blöndu af verð- bólgu og stöðnun („stagflasjón") sem einkenndi hagkerfi Vesturlanda á árunum upp úr 1970. Þetta hlýtur að þýða að hagfræðingar höfðu ekki tiltæka kenningu sem kvað á um að undir vissum kringumstæðum verði stagflasjón. Ekki er hægt að gera þá kröfu til vísindamanna að þeir sjái fram í tímann. En heimspekingurinn skoski bætir við að forspár Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sem byggðu á fágaðri stærðfræði, hafi ræst síður en spásagnir manna sem beittu bara heilbrigðri skynsemi (Maclntyre 1981, 89). Heimildamenn Maclntyres eru ekki einir á báti. Hagfræðingurinn Robert L. Heilbronner vitnar í starfsbróður sinn sem mun hafa sagt að hagfræðingar hafi hvað eftir annað sett fram rangar forspár. Þeir hafi spáð efnahagslægð eftir síðari heimsstyrjöld og líka árið 1962 en spárnar rættust ekki (Heilbronner 1970,179). Fleiri fræðimenn draga forspárgildi hag- fræðikenninga í efa, t.d. bandaríski fræðimaðurinn Brian Leiter. Hann segir að hagfræðingurinn sé hreint ekki betri spámaður en maðurinn á götunni. Ég get t.d. sagt fyrir um að umferðaröngþveiti yrði við Laugardalshöll ef poppgoðið Robbie Williams héldi tónleika þar. En er þetta vísindaleg forspá? Leiter bætir því við að forspár hagfræðinga séu ekki nákvæmari en forspár sem byggja bara á heilbrigðri skynsemi. Lítum á forspána sem kveður á um að verðlagseftirlit sem ákveði há- marksverð á vörum leiði til biðraða og svartamarkaðsbrasks. Svo lengi sem hag- fræðin getur ekki gert tölulega grein fyrir tengslunum milli breytanna í dæminu þá er forspáin ekki vísindaleg segir Leiter (2000). Við gætum hugsað okkur að réttnefnd vísindaforspá myndi kveða á um að ákveðin tengsl væru milli „hæðar“ hámarksverðs og lengdar á biðröð. Eg vil bæta við frá eigin brjósti að forspáin þarf
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.