Hugur - 01.01.2008, Side 129

Hugur - 01.01.2008, Side 129
Menntun, sjálfsþroski og sjálfshvörf 127 ingarkerfi („duldar sjálfskenningar") sem móta hugfar og dagfar þess og leiða til þess að það bregst á ólíkan hátt við líkum aðstæðum. Sérstaka þýðingu hafa í þessu sambandi duldar kenningar fólks um hvaða kost það hafi á að stjórna sjálfu sér og umhverfi sínu. Þessar kenningar hafa mismikið „aðlögunargildi", sem merkir á mannamáli að þær séu mishollar fólki (Dweck, 1999, s. xi, 138,144; Tamir o.fl., 2007). Nánar tiltekið er Dweck höll undir svokallaðar „eignunarkenningar" í sál- fræði sem gera ráð fyrir að við breytum í ljósi þeirra eiginleika sem við eignum sjálíum okkur: teljum okkur hafa til að bera (með réttu eða röngu). Einnig felst í kenningunni að skýringar okkar á eigin hegðun og annarra hafi áhrif á breytni okkar. (b) Sjáfskenning. Endurteknar niðurstöður rannsókna Dweck leiða í ljós að hægt sé að skipta fólki í tvo meginflokka eftir því hvaða „duldar sjálfskenningar" það aðhyllist: festukenningarfólk og vaxtarkenningarfólk. Þeir sem hallir eru undir „festukenningar" telja persónueiginleika sína stöðuga og óhagganlega. Þeir sem styðja „vaxtarkenningar“ telja eiginleikana sveigjanlega og breytanlega. Hinir síðarnefndu fagna áskorunum sem lífið ber á borð fyrir þá og þeir njóta þess að glíma við verðug viðfangsefni sem reyna á hæfileika þeirra og þroska þá. Festu- paufararnir þrá hins vegar auðveld viðfangsefni sem þeir vita að þeir ráða við. Þeir hafa stöðugar áhyggjur af því að komast að raun um að hinir fastskorðuðu hæfi- leikar sínir séu rýrir. Festukenningar drepa því dáð úr fólki og gera það hjálparvana. Dweck hefur þróað mælitæki sem skilja sauðina frá höfrunum. Tækin leiða í ljós að fæstir eru festu- eða vaxtarkenningarfólk á öllum sviðum. Algengt er til dæmis að aðhyllast festukenningu um greind en vaxtarkenningu um siðvit. Engu að síður eru hlutföll festu- og vaxtarkenningarfólks á hverju sviði tiltölulega stöðug og jöfn. Tæpur helmingur fellur í hvorn flokk en um 15% eru einhvers staðar í miðjunni. Endurtekin próf á fólki allt niður í þriggja og hálfs ára aldur leiða í ljós sömu hlutfallslegu skiptinguna (Dweck, 1999, s. 2-7, 96). Þorrinn af rannsóknum Dweck snýst um greind. Festukenningarfólk telur greind fastastæðu og trúir á mælda greindarvísitölu sína eins og markaskrá. Það hefúr vantrú á að geta lært neitt nýtt en vill endurtaka fyrri afreksverk aftur og aftur. Vaxtarkenningarfólk telur greind sveigjanlega og vaxtarmiðaða (leggi maður sig fram við að efla hana). Það fagnar nýjum viðfangsefnum. Meðal rannsókna Dweck á afdrifúm fólks í þessum tveimur flokkum má nefna að nemendur sem hefja nám í nýjum skóla með festukenningu sem bögglað roð fyrir brjósti eiga á hættu að staðna og daga uppi í hinu nýja umhverfi á meðan vaxtarkenningarfólkið blómgast og dafnar. Ein ástæðan er sú að festukenningarfólkið hættir tiltölulega fljótt að reyna (að ná árangri í náminu, eignast nýja vini o.s.frv.). Með því að reyna ekki getur það að minnsta kosti haldið í þá blekkingu að það heföi getað náð settu marki fyþað hefði lagt sig fram um það. Dweck kennir þessi viðbrögð við „áunnið hjálparleysi“ (1999, kaflar 4-6). Dweck og félagar hennar hafa komist að svipuðum niðurstöðum á öðrum mannlífssviðum, svo sem í sambandi við tilfinningastjórn og ástarsambönd: Festu- kenningarfólk leitar frá blautu barnsbeini að viðurkenningu annarra og staðfestingu ríkjandi tengsla. Vaxtarkenningarfólk tekur hins vegar áhættu og leitar nýrra sam-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.