Læknablaðið - 01.08.1923, Blaðsíða 8
H4
LÆKNABLAÐIÐ
lítinn skerf til vitneskju í þessu stórmerka ])jó8arniáli. Reynsla mín nær
a'S vísu aS eins yfir 9 ár, en um 24 ára tímabiliS á undan stySst eg viS
sjúkradagbækur fyrirrennara míns, Sig. SigurSssonar læknis, berklabók
héraSsins, frá 1904, ársskýrslur héraSsins og loks vi'S frásögn kunnugra
og skilgóSra rhanna. Þessar síSastnefndu upplýsingar lúta aSallega a'S
heimilisfangi sjúkl., tölu skyldmenna og þvílíku.
Skrá yfir berklaveika sjúkl. í Dalasýslu síðustu 33 árin. sem athuganir
og ályktanir þessarar greinar felast í og byggjast á, verS eg því mi'Sur,
rúmsins vegna, aS sleppa hér. í skrá þessari eru allir þeir, sem innfærS-
ir eru í bækur héraSsins og 5 sjúkl. aS auki, sem mjög miklar'likur eru
til a'ð hafi haft berklav. og um suma full vissa. Hver sjúkl. er aS eins
talinn einu sinni, en þess getiS, ef og hvenær veikin hefir tekiS sig upp
aftur. Tölu sjúkl. ber því ekki saman viS berklabókina ár hvert. ViS
hvern sjúkl. cr eftir föngum greint frá skrásetningu (ár og dagur), aldri.
livort giftur, tegund veikinnar og byrjun, dánardegi, foreldrum, tölu og
heilsufari svstkina, börnum, húsakynnum, hvort og hvar hann liafi dvaliS
á berklaheimili og því um líku. Sjúklingar Jiessir eru alls 102, en I. tafla
sýnir tölu þeirra hvert ár og í hverjum hreppi.
2. Útbreiðsla berklaveikinnar 1890—1922.
Hér fer á eftir tafla yfir berklasjúklinga í Dalasýslu í 33 ár, skift eftir
hreppum; þaS er I. tafla. ÞaS skal tekiS fram, aS sjúklingatalan er óáreiS-
anleg i SkarSsstrandarhreppi; mér er kunnugt um, aS þar hefir veriS meira
um veikina en taflan sýnir. í hinum hreppunum er hún samkvæmt þvi, sem
mér er best kunnugt. Tölurnar innan sviga, aftan viS nöfn hreppanna, er
íbúatala þeirra (manntal 1915).
Sjúklingatalan er misjöfn á ýmsum árum þessa tímabils, en þá kemur
fyrst til greina aS athuga farsóttir þær, mislinga, kíghósta og inflúensu.
er hafa áhrif á berklasýkingu. Á þessu árabili gekk infl. 1907, ’i2, T5,
20 og ’2i; misl. 1907 og 1916 og kíghósti 1909 og 1920. Misl. og itifi.
1907 hækka sjúklingatöluna þaS áriS og hækkunin heldur áfram 1908.
Kíghóstinn 1909 og infl. 1912 sýnast ekki hafa augljós áhrif, en þegar
infl. og misl. leggjast á eitt 1915—16, þá hækkar sjúkratalan aS marki
og þeirrar hækkunar gætir næsta ár á eftir. ÞaS er líka eðlilegt. Meiri
hluti sjúklinganna 1917 eru skráSir fyrri hluta ársins og hafa sýkst 1916.
Svo lækkar talan aftur.en 1920,sem er infl,- og kíghóstaár,hækkar hún enn.
Sé litiS á sjúklingátöluna hvert n ára bil þessa 33 ára timabils, þá
kemur í ljós, aS fyrstu 11 árin (1890—1900) er talan 4. næstu 11 árin
Í1901—11) er hún 33, en síSustu 11 árin (1912—22) er hún 65. Veikin
fer smávaxandi öll ]iessi 33 ár, jafnt og þétt. en misl., infl. og kighósti
valda dálitlum öldum. Saurbæjarhreppur er frábrugSinn aS því leyti, aS
þar vex veikin ískyggilega síSustu árin. AS jiessum hrepp undanskildum
sem er langhæstur, er líku máli aS gegna um flesta hreppana, sjúklinga-
talan er svipuS i 6 hreppunum aS tiltölu viS fólksfjölda eftir því sem
veriS getur um svona lágar tölur. Ekki er heldur hægt aS sjá þar neina
ölduhreyfingu aðra en þá, sem umgetnar farsóttir valda. SkarSsströnd er
hér ekki talin meS af áöurnefndum ástæSum.