Sagnir - 01.05.1982, Side 38
hóruhús eða deyja. Vegna kraftaverka bjarg-
ast hún frá refsingunum og stendur að lok-
um með pálmann í höndunum. Birte bar
saman konur í ættarsögum og helgisögum og
komst m.a. að því, að höfnun kvenna á ráð-
stöfunarrrétti karla yfir þeim á borð við það
sem gerist í helgisögunum, sé ekki að finna í
ættarsögunum. Rakti hún fyrir því ýmsar
ástæður.
Dr. Grethe Jacobsen frá Danmörku talaði
um breytingar á kjörum kvenna með tilkomu
kristni. Hún vildi meina, að ef marka mætti
elstu norræn lög hefði staða kvenna á
miðöldum verið sterkust og áhrif þeirra mest
á íslandi, en verst i Danmörku og Svíþjóð.
Hún taldi að kristnin hefði ekki breytt áhrif-
um kvenna á stjórnmál, en hún hefði bætt
stöðu þeirra á vissan hátt, ekki síst með
breytingum á hjónabandslöggjöf, þar sem
kirkjan hefði beitt sér gegn nauðungargift-
ingum og bannað hjónaskilnaði. Þar að auki
bauðst konum nú annar möguleiki en að
verða eiginkona og móðir, klausturlífið.
Urðu fjörugar umræður um fyrirlestur
Grethe og sýndist hverjum sitt.
Else Mundal cand. philol. frá Noregi fjall-
aði um áhrif ritmenningar á stöðu kvenna.
Hún taldi að konur hefðu að öllum líkindum
átt meiri þátt í skáldskap fyrir ritöld. Þegar
skáldskapurinn varð að bókmenntum og
skáldin að rithöfundum hefðu karlar fengið
mun betra tækifæri en konur til slíkra iðk-
ana í þeim hópum þjóðfélagsins, sem höfðu
á annað borð möguleika á menntun. Kirkjan
innleiddi ritmenninguna og kirkjan var karl-
veldisstofnun. Aðeins í skólum á vegum
hennar var hægt að öðlast þá menntun, sem
rithöfundar þörfnuðust, og það voru langt-
um fleiri karlar en konur, sem þar komust
að. Til að sinna ritstörfum þurfti tíma, pen-
inga, aðstöðu og menntun, sem konur höfðu
í minna mæli en karlar. Þær gátu hins vegar
mælt eitt og annað af munni fram við dagleg
störf. Else færði einnig rök að því, að sá
hluti norrænna fornbókmennta, sem sterk-
ust tengsl hafi við munnlega menningu, end-
urspegli jafnframt oftar kvennaviðhorf.
Auk kvennasögufyrirlestranna hélt dr.
Kristján Eldjárn erindi á ráðstefnunni um
fornleifarannsóknir í Skálholti og sögu stað-
arins. Heimir Steinsson rektor sýndi gestum
sögustaði í nágrenninu og miðlaði þeim
margháttuðum fróðleik á góðum stundum.
Fór ráðstefnan á allan hátt hið besta fram
undir rösklegri stjórn Silju Aðalsteinsdóttur,
aðalritara hópsins. í lokin var ákveðið að
næstu ráðstefnu um konur á miðöldum
skyldi halda í Noregi sumarið 1983 og fjalla
um efnið „Vinna kvenna á miðöldum“, en
samkvæmt nýjustu fréttum gæti það orðið
fyrr og eru í gangi fjörugar umræður um
markmið og leiðir.
Heimildir:
Aspects of Female Existence. Proceedings from The
St. Gertrud Symposium „Women in the Middle Ages“
Copenhagen, September 1978, Copenhagen 1980.
Kvinnans ekonomiska stallning under nordisk medel-
tid. Uppsatser framlagda vid ett kvinnohistorisk
symposium i Kungalv 8—12 oktober 1979.
Kompendiet, Lindome 1981.
Fjölrituð gögn frá Skálholtsráðstefnu 1981.
36