Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 82
mikið miðað við það sem var á meginlandi
Evrópu. En alla vega hefur hann ekki talið
sig bera pólitiskar skyldur gagnvart landi og
þjóð, nema að mjög óverulegu leyti.
Þegar sú þróun í átt að eflingu miðstýr-
ingar, sem átti sér stað í Evrópu á 13. öld,
barst norður á bóginn, þá var ekkert afl á ís-
landi sem gat tekið að sér þetta miðstýrandi
hlutverk og notfært sér þá þjóðernisvitund
sem til staðar var og stuðlað að frekari efl-
ingu hennar, eins og raun varð á víða í Ev-
rópu. Hinsvegar var rökrétt að Noregskon-
ungur tæki að sér þetta hlutverk vegna hinna
margvíslegu ítaka sem hann hafði á íslandi.
Ýmsir íslenskir höfðingjar höfðu löngum
verið honum bundnir og þau bönd voru,
samkvæmt hugmyndum þessa tíma, sterkari
en tengsl við íslenska þjóð.
Niðurlag
Ef ég nú reyni að draga saman niðurstöður
mínar í stuttu máli verður útkoman eitthvað
á þessa leið:
I. íslendingar höfðu a.m.k. frá því í byrj-
un 13. aldar litið á Norðmenn sem útlend-
inga og haft þannig vitund um sjálfa sig sem
sérstaka þjóð.
II. Sú þjóðarvitund var fyrst og fremst vit-
und um átthaga og ýmis sameiginleg þjóðar-
einkenni sem aðgreindi þá frá öðrum, en
gætti lítið á hinu pólitíska sviði.
Tilvitnanir:
1. Tout 1972, 60.
2. Sigurður Líndal 1974, 216—17.
3. Sama, 217.
4. íslenzk Fornrit 111 1938, cxlvii—cliii.
5. Sama, cli.
6. Jón Jóhannesson 1956, 36.
7. Sama, 36.
8. Hermann Pálsson 1956.
9. Bogi Th. Melsted 1914.
10. Heimskringla I. 316.
11. Grágás I a, 170.
12. Sama, 172.
13. Heimskringla II. 111.
14. íslenzk Fornrit IV 1935, 105—06.
15. íslenzk Fornrit XXXIV 1965, 183—84.
16. Björn Þorsteinsson og Sigurður Líndal 1978,
20—21.
17. Sigurður Nordal 1942, 321.
18. Bogi Th. Melsted 1914, 27.
19. Björn Þorsteinsson og Sigurður Líndal 1978, 21.
Heimildir:
Björn Þorsteinsson og Sigurður Líndal: „Lögfesting
konungsvalds." Saga íslands III, Rv. 1978 19—108.
Bogi Th. Melsted: „Töldu íslendingar sig á dögum
þjóðveldisins Norðmenn?“ Afmœlisrit til Dr. Phil. Kr.
Kálunds 1914, Kh. 1914. 16—33.
Grágás I a. Kh. 1852.
Heimskringia I og II. Kh. 1893—1900.
Hermann Pálsson: „Útlendir menn.“ Tímarit Máls
og menningar 17 (1956) 179—181.
Islenzk Fornrit III, IV og XXXIV. Rv. 1935, 1938 og
1965.
Jón Jóhannesson: íslendinga saga 1, Rv. 1956.
Sigurður Nordal: íslensk Menning I, Rv. 1942.
Sigurður Líndal: „ísland og umheimurinn." Saga ís-
lands I, Rv. 1974 199—223.
Sigurður Líndal: „Stjórnskipunarhugmyndir og
stjórnarhættir til loka miðalda." Saga íslands III, Rv
1978. 1—16.
Tout, T.F.: „Feudal Allegence and National Senti-
ments.“ Nationalism in the Middel Ages. European
Problem Studies, New York 1972.
80