Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Qupperneq 6

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Qupperneq 6
Forustugrein Aukið samráð ríkis og sveitarfélaga Hlutdeild sveitarfélaganna í samneyslunni og efnahagsumsvifum hins opinbera hefur verið að aukast á undanförnum árurn og þar með þjóðhags- leg áhrif allra þeirra gerða. Samráð ríkis og sveitar- félaga er þó mun takmarkaðra og lausara í reip- unum en eðlilegt getur talist og ásættanlegt er með tilliti til þess að miklir hagsmunir eru í húfi. Alþingi setur löggjöf um hin ýmsu framfaramál og tíðum eru það sveitarfélögin sem eiga að annast framkvæmd hennar og bera kostnað sem af henni leiðir. í aðdraganda slíkrar lagasetningar hefur ekki verið reiknaður út sá kostnaður sem sveitarfélögin þurfa að bera og leiðir af gildistöku nýrra laga. Santa gildir um framkvæmdavald ríkisins sem setur reglugerðir sem oft hafa í för með sér út- gjaldaauka fyrir sveitarfélögin og ekki hefur verið gerð tilraun til að reikna út og sjá fyrir. Þá þróun sem verið hefur í íjármálum sveitarfélaga og birtist í stöðugri skuldaaukningu þeirra má að meginhluta rekja til laga og reglugerða sem haft hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin án þess að þeirn hafi verið séð fyrir tekjum til að mæta þeim kostnaðarauka. Laun og launatengd gjöld eru stærsti útgjalda- liður í rekstri ríkis og sveitarfélaga og hvort fyrir sig gerir kjarasamninga við hlutaðeigandi stéttar- félög. Sveitarfélögin hafa nýverið gert kjarasamn- inga við viðsemjendur sína sem hafa verulegan útgjaldaauka í för með sér og sama má segja um ríkið. Því hefur verið haldið fram að sveitarfélögin hafi farið offari í launahækkunum. Þegar grannt er skoðað kemur á hinn bóginn í ljós að það er miklu fremur ríkið sem rutt hefur braut mikilla launa- hækkana að undanförnu, m.a. með svokölluðum aðlögunarsamningum við einstakar starfsstéttir. Nýverið kom út skýrsla starfshóps sem félags- málaráðherra skipaði til að leggja fram tillögur um hvernig unnt sé að meta ijárhagsleg áhrif laga og annarra stjórnvaldsákvarðana á fjárhag sveitarfé- laganna. í þeirri skýrslu kemur m.a. fram að annars staðar á Norðurlöndunum hafa verið settar reglur um slíkt kostnaðarmat. í Danmörku ber fagráðu- neytum að leggja mat á kostnað sveitarfélaga sem leiðir af lagafrumvörpum, reglugerðum og vinnu- reglum, sem viðkomandi ráðuneyti hyggst leggja fram. Jafnframt þurfa þau að gera grein fýrir því hvernig sveitarfélögunum verði fengnir fjármunir til að annast framkvæmd þeirra. Tillögur um kostn- aðarmat og tekjuöflun eru síðan teknar til með- ferðar á samráðsvettvangi ríkis og sveitarfélaga samkvæmt reglum þar um, sem einnig gilda um meðferð ágreiningsmála. Annar meginmunur á samskiptum ríkis og sveit- arfélaga hér og annars staðar á Norðurlöndunum felst í því að þar eru áform ríkisstjórna um breyt- ingar á fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitar- félaga og fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglugerðum, sem áhrif hafa á fjármál sveitarfé- laga, teknar til umfjöllunar með góðum fyrirvara. Þannig gefst tími til umfjöllunar um ýmis sam- skiptamál og áhrif og afleiðingar breytinganna eru séðar fyrir. Öguð samskipti með skipulegum vinnubrögðum hafa til þessa ekki verið ástunduð hér með sambærilegum hætti. Starfshópurinn um kostnaðarmatið hefur nú lagt fram mótaðar tillögur um breytingar hvað þetta varðar. Á grundvelli þeirra verður nú unnið að undirbúningi reglna um kostnaðarmat lagafrumvarpa og annarra stjórn- valdsákvarðana sem áhrif hafa á fjárhag sveitarfé- laga. I framtíðinni ætti öllum viðkomandi því að vera ljóst að kostnaðarmat verður að framkvæma samkvæmt settum reglum sem þar um gilda. Með sambærilegum hætti þarf að taka samskipti ríkis og sveitarfélaga í kjaramálum til endurskoð- unar og taka upp nánara samráð um þau mál. Mis- vísandi umfjöllun og túlkun á áhrifum þeirra kjara- samninga sem ríki og sveitarfélög hafa gert að undanförnu eru glöggt dæmi um nauðsyn þess. Aukin urnsvif sveitarfélaganna leiða jafnframt til þess að þróun í rekstri þeirra, afkomu og skuld- setningu hefur sífellt þyngra vægi í efnahagslegu tilliti og þjóðhagslegu samhengi. Það er þvi mikið hagsmunamál að ríki og sveitarfélög móti skýrar reglur um aukið samráð um fjármálaleg samskipti, efnahags- og kjaramál. Þórðw Skúlason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.