Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 66
Húsnæðismól
Á myndinni er Guðrún Jónsdóttir, formaður Búmanna, við hlið
Heimis Ingimarssonar frá Hagþjónustunni á Akureyri, sem hefur
annast mál Búmanna á staðnum. Á myndinni eru einnig for-
svarsmenn Hyrnu, þeir Helgi Snorrason, lengst til vinstri, og Örn
Jóhannsson, lengst til hægri á myndinni, fyrir framan eina ibúð-
ina sem afhent var.
Holtateig. Samstarf Búmanna og Hyrnu hefur verið
farsælt og hafa aðilar undirritað viljayfirlýsingu
um áframhaldandi samstarf. Gert er ráð fyrir því
að heíja byggingu átta raðhúsaíbúða við Lindar-
síðu á Akureyri í byrjun árs 2002 ef lánsheimildir
verða samþykktar af íbúðalánasjóði og er áformað
að byggja átta íbúðir árið 2003.
Tíu hæða hús við Blásali 24 í Kópavogi.
39 ibúðir í Blásölum 24 í Kópavogi
í aprílmánuði sl. afhentu Búmenn 39 ibúðir í
Blásölum 24 í Kópavogi. Húsið er 10 hæðir á ein-
um besta útsýnisstað á höfuðborgarsvæðinu. Húsið
vekur athygli fýrir hönnun og útlit og allar íbúðir
hafa svalir í suður og vestur. Flutt var inn í íbúðirn-
ar um páskana. í húsinu eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 her-
bergja íbúðir.
Framtiðarbyggingarsvœði Búmanna við Presta-
stíg í Grafarholti
Stærsti einstaki áfangi Búmanna er við Prestastíg
i Grafarholti. Búmenn munu byggja samtals 80
íbúðir á einni lóð. í fyrsta áfanga munu Búmenn
afhenda 32 íbúðir á vormánuðum 2002 í tveimur
fjögurra hæða fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir að
Við Prestastíg i Grafarholti er unnið að stærsta einstaka áfanga
Búmanna. Fyrir lok ársins 2003 verða þar byggðar áttatíu íbúðir
á einni lóð.
hinar verði afhentar á árinu 2003. Mótás ehf. bygg-
ir fyrir Búmenn í Grafarholti. Framkvæmdir ganga
vel, hús nr. 6 er risið, unnið að lokafrágangi á þaki,
búið er að glerja og einangra húsið að utan og er
gert ráð fyrir að búið verði að setja á það álklæðn-
ingu innan tíðar. Nú þegar hafa helstu götur verið
malbikaðar og vinna við lóð vel á veg komin. Búið
er að steypa bílakjallara og fyrstu hæð i húsi nr. 8.
Við Suðurtún 1-35 í Bessastaðahreppi reisa Búmenn 18 íbúðir
með bílskúr.