Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 33
Fulltrúaráðsfundir
351
61. fundur fulltrúaráðsins
haldinn í Reykjavík 23. nóvember 2001
Fulltrúaráð sambandsins hélt síðari fund sinn
árið 2001 í Ársal á 2. hæð á Radisson SAS Hótel
Sögu í Reykjavík hinn 23. nóvember sl.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður sambands-
ins, setti fundinn og kynnti meginverkefni hans.
Hann nefndi einkum byggðamál og gerði síðan
grein fyrir helstu málum sem væru til meðferðar í
sameiginlegum nefndum sambandsins og ráðuneyta.
Tiltók hann sérstaklega verkeihi verkaskiptaneftidar,
nefndar sem fjallar um undanþágur frá greiðslu
fasteignaskatts, nefndar sem endurskoðar lög og
reglugerðir um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og starfs-
hóps sem leggja skal fram tillögur um hvernig unnt
sé að meta fjárhagsleg áhrif laga og annarra stjórn-
valdsákvarðana á fjárhag sveitarfélaga.
Þá gerði hann grein fyrir stöðu nokkurra mála
sem væru til umræðu milli fulltrúa sambandsins
annars vegar og forsætisráðherra, félagsmálaráð-
herra og fjármálaráðherra hins vegar um ýmis fjár-
málaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga, sem
fjallað er um í sameiginlegri yfirlýsingu fulltrúa
ríkisstjórnarinnar og sambandsins frá 28. desember
sem frá er skýrt annars staðar í þessu tölublaði.
í lokaorðum sínum lagði formaður áherslu á að
helsta viðfangsefni stjómvalda ætti að vera að
styrkja og efla sveitarstjórnarstigið. Mestu skipti í
þeim efnum sameining sveitarfélaga, ábyrg og
markviss stjórnun fjármála, vönduð stjórnsýsla og
skýr stefnumörkun til framtíðar.
Fundarstjórar og fundarritari
Auk formanns var Sigríður Ólafsdóttir, bæjar-
fulltrúi í Sveitarfélaginu Árborg, kosin fundarstjóri
og sem fundarritari Unnar Stefánsson, ritstjóri
Sveitarstjórnarmála.
Skipulag og starfsemi sambandsins,
fjárhagsáætlanir
Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri sambands-
ins, gerði grein íyrir skipulagi og starfsemi sam-
bandsins og kynnti fjárhagsáætlun þess fyrir árið
2002 og rammafjárhagsáætlun fyrir árin
2003-2005, sem voru til afgreiðslu á fundinum.
Sérstaklega kynnti framkvæmdastjóri nýtt skipurit
og starfsáætlun sambandsins fyrir árið 2002.
Fjárhagsáætluninni og rammaáætluninni var að
lokinni kynningu framkvæmdastjóra vísað til íjár-
hagsnefndar fúndarins.
Reynslusveitarfélög
Sigríður Stefánsdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs
Akureyrarbæjar, og Anna Guðrún Björnsdóttir,
sviðsstjóri á þróunarsviði sambandsins, fulltrúar
sambandsins í verkefnisstjóm reynslusveitarfélaga-
verkefnisins, gerðu grein fyrir framkvæmd reynslu-
sveitarfélagaverkefnisins á gildistíma laganna en
hann rennur út í árslok 2001. Þær vörpuðu fram
spurningu þess efnis hvað þá tæki við og nefndu
hugmyndir um þjónustusamninga við einstök sveitar-
félög um tiltekin verkefni eða ráðgefandi þróunar-
nefnd skipaða fulltrúum sambandsins og félagsmála-
ráðuneytisins sem fylgdist með nýsköpun og þróun-
arverkefnum í sveitarfélögunum og meti reynsluna
af þeim og ynni að því að greiða fyrir nýsköpun og
þróun i stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélaga.
Formaður þakkaði þeim Sigríði og Önnu Guð-
rúnu vel unnin störf í stjórn reynslusveitarfélaga-
verkefnisins.
Fráveituframkvæmdir
Ingimar Sigurðsson, skrifstofústjóri í umhverfis-
ráðuneytinu, flutti erindi um fráveituframkvæmdir
sveitarfélaga og störf fráveitunefndar. Fjallaði hann
um lög nr. 53/1995, um fjárhagslegan stuðning við
sveitarfélögin vegna fráveituframkvæmda en sam-
kvæmt reglugerð skal þeim framkvæmdum lokið
fyrir árslok 2005 og er það í samræmi við skuld-
bindingar í EES-samningnum.
Til þessa hafa endurgreiðslur ríkisins vegna frá-
veituframkvæmda sveitarfélaganna aldrei numið
200 millj. króna á ári eins og lögin gera ráð fýrir
sem hámarki. Framkvæmdir sveitarfélaganna á ár-
inu 2001 væru á hinn bóginn miklu meiri en áður
og kalla á um 350 millj. króna endurgreiðslufram-
lag ríkissjóðs á árinu 2002.