Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 92
Fjármál
Rekstraraflcoma sveitarfélaga á árinu 2000
Skatttekjur sveitarfélaga jukust á árinu 2000 um
6.1 milljarð frá árinu á undan eða um 7,3% að
raungildi miðað við þróun vísitölu neysluverðs
rnilli áranna 1999 og 2000. Rekstrargjöldin hækk-
uðu aftur á móti um 5,5 ntilljarða eða um 8,7% að
raungildi. Vegur þar þyngst 1,7 milljarða útgjalda-
aukning vegna fræðslumála og 0,9 milljarða út-
gjaldaaukning vegna félagsmála. Hlutfall rekstrar-
útgjalda af skatttekjum var 83,3% og hækkaði um
1.1 prósentustig frá árinu áður.
Halli sveitarfélaga á árinu nam unt 4,4 millj-
örðum króna sem svarar til 7,9% af heildarskatt-
tekjum sveitarsjóða á árinu 2000. Er þá bæði tekið
tillit til niðurstöðu rekstrar og ijárfestingar. Á árinu
1999 var hallinn um 2,9 milljarðar sem svaraði til
6% af heildarskatttekjum.
Heildarskuldir sveitarfélaga jukust um 2,2 millj-
arða að raungildi en peningalegar eignir þeirra juk-
ust um 0,5 milljarða þannig að peningaleg staða
sveitarfélaganna versnaði unt 1,7 milljarða króna.
í árslok 2000 námu skuldir sveitarfélaga 56,3
milljörðum króna sem nernur 100,5% af skatt-
tekjum. Árið á undan var þetta hlutfall 103,3%.
Námsstefnur
Hönnun fyrir alla
- námsstefna 26. apríl
Endurmenntunarstofnun efnir hinn 26. apríl til
námsstefnu sem nefnist Hönnun fyrir alla. Hún er
haldin í málaflokki sem nefnist Byggingar og um-
hverfi og er haldin í samstarfi við Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra.
Námsstefnan er ætluð öllum þeim sem koma að
hönnun nýbygginga og endurhönnun eldri bygg-
inga og taka ákvörðun um hönnun mannvirkja.
Fjallað verður um hönnun út frá sjónarmiðinu „að-
gengi fyrir alla“. Farið verður yfir ýmsar sérþarfir
og rætt hvernig megi á hönnunarstigi taka tillit til
þeirra.
Þar er m.a. átt við hreyfihamlaða, sjónskerta,
heyrnarskerta, þroskaskerta og þá sem haldnir eru
Þetta má lesa út úr Árbók sveitarfélaga 2001 sem
kom út í tengslum við ljármálaráðstefnuna sem
haldin var 10. október, eins og fram kom í síðasta
tölublaði þar sem skýrt var frá útkomu árbókar-
innar. í bókinni eru birtar margháttaðar
upplýsingar er varða ijárhag sveitarfélaga, starf-
semi þeirra og ýmis önnur verkefni er varða
rekstur sveitarfélaga.
Þar er birt sundurliðað yfirlit um skiptingu tekna
og rekstrargjalda sveitarfélaga í krónum á hvern
íbúa. Þannig er samanburður milli sveitarfélaga
auðveldur og hægt að bera saman hvernig rekstur-
inn skiptist eftir málaflokkum frá einu sveitarfélagi
til annars.
Einnig er nú sú viðbót frá fyrri árbókum að birt
er yfirlit um rekstur og eignastöðu helstu stofnana
og fyrirtækja í eigu sveitarfélaganna, s.s. félags-
legra ibúða, hafnarsjóða og veitustofnana. Mikil-
vægt er að hafa aðgang að þessum upplýsingum til
viðbótar við uppgjör sveitarsjóða til að fá heildar-
yfirlit unt fjárhagsstöðu sveitarfélaganna.
Árbókin fæst á skrifstofu sambandsins að Háa-
leitisbraut 11 i Reykjavík og kostar 2000 kr.
astma og ofnæmi. Sýnt verður myndband og ijallað
um þær hindranir sem fatlað fólk rekst á. Farið
verður yfir ákvæði í skipulags- og byggingarlögum
og skipulags- og byggingarreglugerð um aðgengis-
mál og kynntar innlendar og erlendar nýjungar í
hönnun nýbygginga og endurgerð gamalla húsa.
Á námsstefnunni verða m.a. pallborðsumræður um
efnið.
Handbókin „Aðgengi fyrir alla“ verður kynnt á
námsstefnunni og gefst þátttakendum kostur á að
kaupa hana á sérstöku tilboðsverði. I henni eru ít-
arlegar leiðbeiningar um hönnun bygginga og um-
hverfis með tilliti til aðgengis.
Þátttökugjald á námsstefnunni er 16.500 kr.
Umsjónarmaður hennar er Jón Ólafur Ólafsson
arkitekt, Batteríinu ehf.