Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 26
Orkumál
Fimmti ársíundur Samtaka sveitar-
félaga á köldum svæðum
- á Radisson SAS Hótel Sögu 10. október 2001
Fimmti ársfundur Samtaka
sveitarfélaga á köldum svæðum var
haldinn á Hótel Sögu miðviku-
daginn 10. október sl. Fundinn
sátu fulltrúar fyrir 30 af 35 að-
ildarsveitarfélögum samtakanna.
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, flutti
ávarp við setningu fundarins og
kynnti stefnu ríkisstjórnarinnar
urn breytt skipulag orkumála,
jöfnun orkuverðs, rannsókn á
umhverfisvænum orkugjöfum og
uppbyggingu orkufreks iðnaðar.
Ennfremur vék ráðherra að
frumvarpi til nýrra orkulaga,
samstarfi á sviði nýorku við
Evrópusambandið, stofnstyrkjum
til hitaveitna, jarðhitaleitarátaki,
niðurgreiðslu raforku til húshit-
unar og lagafrumvarpi til jöfn-
unar húshitunarkostnaðar.
Framsöguerindi
Vífill Karlsson lektor flutti erindi
um raforku til húshitunar í ljósi
nýrra orkulaga og vék m.a. að
þróun raforkunotkunar frá
1960-1999, skiptingu raforku-
notkunar eftir notendum, raf-
orkuverði einstakra framleið-
enda, skipulagi orkumála og
frumvarpi til nýrra orkulaga.
Jafnframt ijallaði hann um flutn-
ingstöp vegna ljarlægða, vægi
orkukaupa í rekstri, verðlagn-
ingu miðað við flutningsvega-
lengd orku og þjóðhagslega hag-
kvæmni orkugeirans.
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri á
Skagaströnd, formaður Samtaka
sveitarfélaga á köldum svæðum.
Þórhallur S. Bjarnason tækni-
fræðingur flutti erindi um orku-
vinnslu úr glatvarma, orku-
sparnað og umhverfisvernd.
Hann ræddi m.a. um nýtingu
glatvarma til upphitunar og glat-
varma og jarðhita til raforku-
vinnslu. Ennfremur vék hann að
samnýtingu á varma til raforku-
vinnslu og upphitunar og taldi
áhugavert fyrir sveitarfélög að
kanna hvort „niðurgreiðsla“ fáist
í hlutfalli við orkusparnað með
nýtingu glatvarma.
Erindi Þórhalls er birt annars
staðar í þessu tölublaði.
Magnús B. Jónsson, formaður
samtakanna, flutti skýrslu
stjórnar um starfsemi þeirra liðið
starfsár og Birgir L. Blöndal
lagði fram og kynnti ársreikning
fyrir árið 2000.
Ályktanir
Aðalfundurnn gerði nokkrar
ályktanir:
Aukinn stuðningur við nýjar
hitaveitur
Fundurinn skoraði á iðnaðar-
og viðskiptaráðherra að auka
stuðning við virkjun jarðvarma
til húshitunar með því að lengja
viðmiðunartímabil stuðnings við
nýjar hitaveitur. í stað þess að
styrkurinn nemi áætluðum fimm
ára niðurgreiðslum á rafmagni til
húshitunar á orkuveitusvæði
hitaveitunnar nemi hann áætl-
uðum tiu ára niðurgreiðslum.
Niðurgreiðslur á raforku til hús-
hitunar
Fundurinn lýsti ánægju sinni
með þá aukningu sem orðið
hefúr á fjárframlögum til niður-
greiðslu á raforku til húshitunar,
en beindi því jafnframt til iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra að beita
sér fyrir enn auknum niður-
greiðslum með það að markmiði
að kostnaður við hitun húsa með
raforku verði sambærilegur við
meðaldýrar hitaveitur. Fundurinn
taldi að móta þurfi stefnu um
niðurgreiðslur á húshitunar-
kostnaði atvinnufyrirtækja.
Markmið þeirrar stefnumótunar
verði að jafna samkeppnisstöðu
atvinnustarfsemi á hinum
köldum svæðum gagnvart þeim
sem hafa aðgang að hagstæðari
orku til húshitunar.