Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 21
Veitumál
Ný vatnsveita í Biskupstimgum
Þegar jarðskjálftinn gekk yfir
Suðurland 17. júní 2000 hvarf
allt vatn úr vatnsbóli Biskups-
tungnahrepps í Bjarnarfelli. í
framhaldi af því var tekin sú
ákvörðun að leggja nýja kalda-
vatnsveitu frá Fljótsbotnum í
Haukadal. Nær lögnin til byggð-
arinnar við Geysi til Reykholts-
hverfis og miðsveitarinnar og
síðar er ætlunin að framlengja
hana til Laugaráss. Allt efni í
veituna var keypt af SET ehf. á
Selfossi. Guðjón Þ. Sigfússon,
verkfræðingur á Selfossi, annað-
ist verkfræðivinnu og Sigurjón
Á. Hjartarson, Brjánsstöðum í
Grímsnesi, var verktaki við verk-
legar frantkvæmdir.
Þá var þannig frá öllu gengið
að sveitarfélagið fengi starfsleyfi
fyrir vatnsveituna og að virkt
eftirlit yrði með henni
á komandi árum.
Hinn 22. nóvember
fékk nýja vatnsveitan
starfsleyfið. Var það
fyrsta starfsleyfið
sem veitt er sam-
kvæmt nýrri neyslu-
vatnsreglugerð sem gefin hefur
verið út. Nýja reglugerðin er ít-
arleg og kveður skýrt á um gæði
vatns og skilgreiningu á vatns-
verndarsvæðum og vatnsbólum.
Elsa Ingjaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, afhenti starfsleyfið
og Ragnar Sær Ragnarssoon
sveitarstjóri veitti þvi viðtöku
fyrir hönd hreppsins.
Lagning hinnar nýju vatns-
veitu hefur verið stærsta verkefni
þessa kjörtímabils í Biskups-
tungum að frátal-
inni byggingu nýs
íþróttahúss. Alls
kostuðu þessi tvö
verkefni lOOmillj-
ónir króna en
sveitarfélagið hefur
fengið mótframlög
vegna þessara verkefna en hlutur
hreppsins í framkvæmdunum er
um 45 millj. króna.
I hreppnum hefur verið meira
byggt en nokkru sinni áður og
íbúafjöldi hefur á allra síðustu
árum aukist hlutfallslega meira í
Biskupstungum en í nokkrum
öðrum hreppi í strjálbýli.
Myndin var tekin er Ragnar
Sær veitti viðtöku starfsleyfi
vatnsveitunnar úr hendi Elsu
Ingjaldsdóttur. Ljósm. Almar
Sigurðsson.
Húnljósritar,
prentar og faxar
eins og ekkert sé
fer aldrei í írí
nashuatec
Hraðvirk, fjölhœf og hljóðlát.
Allt að fjórar einingar í einni vél!
Ljósriti, prentari, fax og skanni
Optima er aðili að rammasamningi Ríkiskaupa.
Ármúla 8 -108 Sími 588 9000