Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Qupperneq 30

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Qupperneq 30
Orkumál Virkjun glatvarmans opnar einnig möguleika fyrir Norðurál að framleiða raforku til eigin nota og/eða sölu til rafveitna í nágrenninu. Áætlað er að framleiðslukostnaður á heitu vatni úr glatvarmanum frá Norðuráli sé um 10 aurar/kWh og að fjárfestingin skili sér á tæpum fimm árum. Nýja kaffibrennslan Úttekt sem unnið er að hjá Nýju kaffibrennsl- unni á Akureyri bendir til að frá ofni kaffibrennsl- unnar megi virkja glatvarma og framleiða varmaafl sem nemur um 300 kW eða urn 170 MWh árlega. Nýtanlegur glatvarmi mun því anna allri upphitun- ar- og heitavatnsneysluþörf fyrirtækisins. Til gamans má benda á að glatvarmaorkan frá kaffibrennslunni annar árlegri upphitunar- og heitavatnsneysluþörf fyrir 10 íbúða hverfi. Virkjun glatvarmans auðveldar einnig fyrirtækinu að mæta auknum umhverfiskröfum í tengslum við útblástur og mengun. Úttektinni er ekki lokið en líkur benda til að virkjun glatvarmans sé ágætlega arðbær. 3. Nýting glatvarma og jarðhita til raf- orkuvinnslu Möguleikinn til raforkuvinnslu úr lághita hefur lengi verið þekktur en ný tækni og þróun á búnaði hefur gert þessa aðferð hagkvæmari og um leið opnað aukin sóknarfæri á þessu sviði. Lághita til raforkuframleiðslu má víða finna, svo sem í vatni frá lághitasvæðum, frá útblásturs- og kælikerfúm verksmiðja og skipa, skiljuvatni frá jarðgufúveitum og svo framvegis. Hér á eftir eru dregnar saman niðurstöður úr út- tektarskýrslum frá Seyðisfirði, álverksmiðju Norð- uráls á Grundartanga og Hrísey. Seyðisjjaröarkaupstaóur Úttektin fyrir Seyðisfjarðarkaupstað bendir til að frá fiskimjölsverksmiðjunni megi virkja glatvarma til rafmagnsframleiðslu og framleiða rafafl sem nemur um 500 kWe eða um 2.000 MWh árlega og að auki virkja þéttivarmann frá orkuverinu til upp- hitunar á ljarvarmaveitunni. Framleitt rafafl gæti þannig numið hálfri al- mennri rafaflsþörf bæjarins og þriðjungi af árlegri raforkuþörf hans. Eins og áður er bent á fellur vinnslutími verksmiðjunnar vel að álagstíma bæði fjarvarmaveitunnar og rafveitunnar og getur því jafnað út álagstoppa í kerfinu. Áætlað er að framleiðslukostnaður á raforku úr glatvarmanum frá fiskimjölsverksmiðjunni sé um 2,40 kr/kWh og að fjárfestingin skili sér á um fjórtán árum. Norðurál Úttektin fyrir álverksmiðju Norðuráls á Grundar- tanga bendir til að frá álverinu megi virkja glat- varmann og framleiða rafafl sem nemur um 5 MWe eða um 42.500 MWh árlega og að auki nýta þéttivarmann frá orkuverinu til upphitunar á fjarvarmaveitu fyrir nágrennið. Raforkuframleiðsla úr glatvarmanum gæti þannig annað urn 3% af rafaflsþörf Norðuráls eða allri raforkuþörf urn 5.000 ibúa þéttbýlissvæðis og auk þess annað allri upphitunar- og heitavatns- neyslu fyrir þéttbýlissvæðið. Áætlað er að framleiðslukostnaður á raforku úr glatvarmanum frá Norðuráli sé um 1,50 kr/kWh og að fjárfestingin skili sér á rúmum sjö árum. Hrísey Úttekt sem gerð var fyrir Hríseyjarhrepp bendir til að frá jarðhitakerfinu sem finnst undir eynni megi virkja varmann sem er um 80° C og fram- leiða um 200 kWe rafafl til nota fyrir eyjarskeggja eða um 1.200 MWh árlega og að auki nægilegan varma fyrir hitaveituna í eynni. Raforkuframleiðsla úr jarðvarmanum annar því ríflega allri raforkuþörf íbúanna og að auki allri upphitunar- og heitavatnsneyslu eyjarskeggja. Áætlaður framleiðslukostnaður á raforku úr jarð- varmanum í Hrisey er um 2,70 kr/kWh og að fjár- festingin skili sér á rúmum ljórum árum. 4. Samnýting á varma til raforkuvinnslu og upphitunar Samnýting á varma til raforku- og heitavatns- framleiðslu er víða álitlegur kostur. Á sumum svæðum þarf að kæla jarðhitann áður en vatninu er hleypt inn á hitaveitukerfin. í öðrum tilfellum hafa hitaveitur aðgang að meira vatni en þörf er á til upphitunar. Þá getur raforkuvinnslan sparað út- gjöld vegna raforkukaupa og einnig opnað mögu- leika á tekjum vegna raforkusölu til almennings- rafveitna. Sem dæmi má nefna orkuverið á Húsavík. Þar er 120° C heitt vatn nýtt til rafmagnsframleiðslu áður enn það er nýtt fyrir hitaveitu bæjarins. Heita vatnið er þannig kælt niður í 80° C í 2 MWe raf-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.