Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 82

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 82
Kosningar Ég tel að umræðan undanfarið hafi lent á refil- stigum. í upphafi bar að skilja að rafræna kjörskrá annars vegar og rafræna kosningu hins vegar. Á þessu er auðvitað meginmunur. Rafræn kjörskrá er að mínu mati nærtækt næsta skref í sjálfsagðri þróun sem ekki útheimtir flóknar breytingar á lögum. Rafræn kosning er hins vegar lagalega séð flókið fyrirbrigði og útheimtir grundvallarendur- skoðun kosningalaga, sem nánast var útilokað að næðist í þessari lotu. Ég tel líklegt að sú framsetn- ing ráðgjafa sem fengnir voru til leiks af dóms- málaráðuneyti, að ekki var fullkomlega greint á milli þessara skrefa, hafi átt sinn þátt í að ekkert verði úr lagabreytingum nú. I öðru lagi er ljóst að rafræn kjörskrá ein sér getur truflað þá vinnu fulltrúa stjórnmálaflokka í kjördeildum sem felst í að merkja við hvern kjós- anda sem neytir atkvæðisréttar, sem síðan er sent miðlægt. Illa trúi ég að þetta hafi stöðvað eðlilega framþróun. Ekki sé ég heldur að lög um persónuvernd nr. 77/2000 hafi staðið hér í vegi. Að sjálfsögðu þarf þá að setja í lög skýr skilyrði um meðferð kjör- skrár. Standi lög um persónuvernd á hinn bóginn í vegi fyrir jafn eðlilegri framþróun og rafrænni Sameining sveitarfélaga Vindhælishreppur sameinaðir Félagsmálaráðuneytið hefur birt auglýsingu um sameiningu Vindhælishrepps og Skagahrepps í Austur-Húnavatnssýslu. Er það gert að tillögu nefndar sem skipuð var 26. júní sl. með aðild full- trúa beggja hreppanna, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ráðuneytisins, eins og frá var skýrt í síðasta tölublaði. Var nefndin skipuð með hliðsjón af því að íbúafjöldi Vindhælishrepps hafði verið undir 50 í þrjú ár samfellt, sbr. 6. og 89. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Fyrir atbeina nefndarinnar gerði Rannsóknar- kjörskrá, sem ég fæ ekki séð, þarf einfaldlega að endurskoða viðkomandi ákvæði þeirra samhliða endurskoðun laga um kosningar til sveitarstjórna. í flugvallarkosningunni í Reykjavík var gerð til- raun sem var einstæð i heiminum. Ekki hafði áður, svo vitað væri, verið kosið alfarið rafrænt í al- mennri kosningu. Lokaorð Reykjavíkurborg lagði fram mikla ljármuni í þágu þróunar á þessu sviði. Mikilvægt er að sú þróun verði ekki stöðvuð. Ég sá fyrir mér sem næsta skref að heimilt yrði að taka upp rafræna kjörskrá við sveitarstjórnarkosningar í vor, að ströngum skilyrðum og öryggiskröfum fullnægðum. Það er í samræmi við stefnu stjórnvalda um rafræna stjóm- sýslu. Slíkt yrði til hagsbóta fyrir kjósendur og ég hika ekki við að fullyrða að rafræn kjörskrá auki öryggi við framkvæmd og dragi úr villuhættu. Eins og nú horfir bendir allt til að af þessu verði ekki í komandi sveitarstjónarkosningum, sem er mjög miður. Að stofni til er hér um að rœða erindi sem flutt var á ráð- stefnu, sem haldin var á Hótel Loftleiðum á vegum EJS og Skýrr hf, i lok nóvember 2001. og Skagahreppur stofnun Háskólans á Akureyri skoðanakönnun meðal íbúanna þar sem fram kom eindreginn vilji íbúa beggja hreppanna til sameiningar þeirra. Hreppsnefndirnar létu síðan í té umsögn þar sem mælt var með sameiningunni. Sameiningin öðlast gildi að afloknum sveitar- stjórnarkosningunum 25. maí 2002 en þá verður nýja hreppnunr kosin fimm manna hreppsnefnd. Jafnframt fer þá fram atkvæðagreiðsla um nafn hins nýja sveitarfélags.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.