Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 84

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 84
Tæknimál Myndin er úr Hofsstaðaskóla og var tekin þegar Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra var boðið að koma í skólann og kynna sér þær nýjungar sem um er fjallað í greininni. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Elísabet Benónýsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni í Hofsstaðaskóla, Björn Bjarnason mennta- málaráðherra, Ragnheiður Stephensen, kennari í Hofsstaða- skóla, og Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri í Álftanes- skóla, en hann var grunnskólafulltrúi í Garðabæ á sl. ári. Á myndinni eru einnig nokkrir nemenda Hofsstaðaskóla. Gerð var greining á þörfum skólanna og rætt við kennara til að sjá hvaða væntingar þeir hefðu til notkunar tölva í kennslustarfi. Niðurstaðan varð óhefðbundin leið við lausn þessa verkefnis. Hún var sú að færa tölvubúnaðinn til nemenda í stað þess að færa nemendur að tölvu- búnaðinum. Hingað til hafa skólarnir búið til tölvustofur eða tölvuver og eru eitt eða íleiri slík ver í hverjum skóla. Þetta takmarkar nýtingu tölvanna við kennslu í öðrum greinum en tölvunámi. í þessum tölvustofum er að jafnaði ekki pláss fyrir skóla- bækur á borðum og rúm fyrir kennsluefni er mjög lítið. Þær henta því illa til kennslu í líffræði eða sagnfræði, svo einhver dæmi séu nefnd. I lausninni fólst að búnar voru til færanlegar tölvueyjar. Hver eyja samanstendur af vagni, 12 fistölvum með hleðslutækjum og prentara. Eyj- arnar eru svo keyrðar í þá stofu þar sem nemend- urnir eru í hvert skipti. Til að nýta þennan búnað þurfti að setja upp þráðlaust netkerfi í Garðaskóla og þannig eru tölv- urnar alltaf nettengdar hvar sem er á skólalóðinni. í Hofsstaðaskóla var ekki um að ræða að setja upp þráðlaust staðarnet. Á hinn bóginn var þar valin sú leið að nýta netkerfi sem fyrir var í skólanum þannig að tölvueyjan er tengd í veggtengil og fis- tölvurnar tengjast henni svo þráðlaust. Með þessu móti er hægt að bregðast við spurning- um sem koma upp í kennslustundum með því að láta nemendur hafa tölvur og leita svara á Netinu. Þannig eru kennarar ekki bundnir af því að tölvu- stofur séu lausar og skólarnir geta nýtt stofurnar betur. Þetta fyrirkomulag hentar einnig vel þar sem skólar glíma iðulega við nokkurn húsnæðisvanda. En það sem auðvitað er mikilvægast er að nem- endur venjast á að að sækja sér tölvu og nota hana sem vinnutæki þegar þörf krefur, tölvulæsi eykst og tölvuhræðsla hverfur. Frumkvöðull á íslandi og víðar Nýlega gerðu Garðabær og Námsgagnastofnun með sér samning þess efnis að grunnskólar Garða- bæjar sjái urn prófanir á nýjum kennsluhugbúnaði. Grundvöllur þess að Garðabær fái að koma að svona nýsköpun er einmitt það hversu framsækið bæjarfélagið er í innleiðingu upplýsingatækninnar. Garðabær er frumkvöðull á íslandi í notkun tölvueyja í skólum. Þessi lausn hefur verið notuð erlendis og þótt tíðindum sæta. Þannig má til gam- ans geta að í nýlegu tölublaði af viðskiptablaðinu BusinessWeek var umíjöllun um Don Hall, fram- kvæmdastjóra upplýsingatæknimála í Kent skólaumdæminu suður af Seattle í Bandaríkjunum. í viðtalinu segir Hall frá því að hann hafi sett upp tölvueyjar í skólunum hjá sér. Þær virðast vera sambærilegar við tölvueyjarnar í Garðabæ nema að Hall setti upp 1.000 fisvélar og reiknar með að setja upp 3.000 í viðbót. Tölvuijöldinn í Garðabæ er augljóslega eitthvað minni en ljóst er að Garða- bær hefúr skipað sér í flokk framsækinna bæjarfé- laga víðar en á íslandi. Endurnýjun á tölvubúnaði fyrir bæjar- skrifstofur Garðabæjar Lokaáfangi verkefnisins fólst síðan í endurmati og endurskipulagningu á rekstrarumhverfi tölvu- kerfa bæjarskrifstofa Garðabæjar. Netþjónar, netbúnaður og stýrikerfi bæjarskrif- stofanna voru endurnýjuð að hluta eða öllu leyti í samráði við starfsmenn bæjarins. Einnig var gerður samanburður og úttekt á hag- kvæmni þess að bæjarskrifstofurnar sæju sjálfar um rekstur kerfisins eða að þriðji aðili yrði fenginn til að hýsa það. Eftir forkönnun var ákveðið að efna til útboðs sem skiptist í tvennt; annars vegar var boðinn út rekstur á miðlægum búnaði og hins vegar þjónusta við notendur.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.