Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Side 85

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Side 85
Tæknimál 403 Að loknu útboði aðstoðaði Eskill við val á þjón- ustuaðilum, samningagerð og eftirfylgni með samningum. Hagkvæmt og einfalt Það er augljóslega ákveðin hagkvæmni í því að fá utanaðkomandi ráðgjafa til að annast verkstjórn og skipulagningu verkefna af þessu tagi. Starfs- menn sveitarfélaga hafa sjaldnast yfir að búa þekk- ingu og reynslu sem þarf til að velja saman hag- kvæmustu lausnir. Þeirra sérþekking liggur að jafn- aði á öðrum sviðum og starfskraftar þeirra nýtast því ekki sem skyldi. Annað sem ekki er síður mik- ilvægt er að utanaðkomandi aðilum gefst oft færi á að koma með nýjar og skapandi lausnir sem geta gerbylt núverandi verkferlum til hins betra. En það sem skiptir á endanum mestu máli er að hlutverk ráðgjafanna er að tryggja • að viðskiptavinurinn kaupi aðeins búnað sem fullnægir núverandi þörfum hans og þeim þörfúm sem fyrirsjáanlegar eru í framtíðinni • að viðskiptavinurinn móti tillögur að endur- bættum verkferlum • að viðskiptavinurinn geti nýtt ijárfestingu sína sem fyrst • að rekstur búnaðarins sé sem hagkvæmastur • að jrjónustuaðilar uppfylli gerða samninga Samstarf Eskils og Garðabæjar tókst með af- brigðum vel og óhætt er að segja að niðurstöður verkefnanna séu báðum til sóma. Um Eskil Eskill ehf. er upplýsingatæknifýrirtæki sem var stofnað árið 1999. Hjá fýrirtækinu starfa nú 13 manns, allir sérstaklega menntaðir á sínu sviði. Fyrirtækið hefur lykilþekkingu í greiningu, gerð og innleiðingu upplýsingatæknilausna fýrir fyrir- tæki og sveitarfélög. Þar sem Eskill hefur sérstak- lega einbeitt sér að þjónustu fremur en að vinna að eigin þróun hefur verið lögð talsverð áhersla á verkferlagerð og verkefnastjórnun. Á meðal viðskiptavina Eskils má finna nokkur af stærstu og traustustu fyrirtækjum landsins ásamt stofnunum ríkis og bæja. Auk ráðgjafarsviðs býður Eskill þjónustu við hugbúnaðarþróun, gerð veflausna og síðast en ekki síst smíði gagnvirkra upplýsingastanda (kioska). Heimasíða Eskils er www.eskill.is TRYGGINGA MIÐSTÖÐIN HF. AÐALSTRÆTI 6-8 • 101 REYKJAVÍK SÍMI 5 1 5 -2000

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.