Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 90

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 90
Erlend samskipti Norræn skólamálaráðsteína í Bergen 11.-14. apríl Norrœna skólaleiðin - göngustígur eða hraðbraut? Á síðasta ári var í Vasa í Finnlandi haldin norræn skólamálaráðstefna undir yfiskriíitinni Skólinn í brennidepli. Hana sóttu sjö íslenskir þátttakendur, þar á meðal Gerður G. Oskarsdóttir ffæðslustjóri sem var meðal frummælenda. Nú hefúr verið ákveðið að slík skóla- málaráðstefna verði haldin árlega og verður sú næsta haldin í Bergen dagana i 1.-14. apríl nk. undir yfirskriftinni Norræna skólaleiðin: Hvað höldum við? Hvað viljum við? Hvað gerum við? Heiti fyrirlestra er m.a. Litla barnið í stóra skólanum - og öfúgt, Norræna skólaleiðin - göngustígur eða hrað- braut? Hver á að stjórna hverju í skólanum, ríki eða sveitarfélag? Er til sameiginlegt norrænt gildis- mat? Einnig verður fjallað um Sókrates-mennta- áætlun Evrópusambandsins. Yfirskrift umræðuhópa er m.a. Hin langa skóla- ganga - símenntun, Skólabyggingar og uppeldis- stefúa, Uppeldi fyrir framtíðina, Gæði í einkaskóla og skóla sveitarfélags, hvernig náum við markmið- unum? Ráða börnin við skólann - ræður skólinn við börnin? og Hinn sveigjanlegi skóli. Einnig verður kynntur tilraunaskóli. Pallborðs- umræður verða undir yfirskriftinni Hvað ætla sveitarfélögin á Norður- löndum að gera til að ná markmiðum sínum með skólanum? Þátttökugjald er 3.400 norskar krónur eða um 40 þús. ísl. krónur. Gisting kostar um 10 þús. kr. hver nótt og far- gjald til Bergen og til baka um 62 þús. krónur. Þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í skoð- unarferðum um Bergen svo og skipulagðri göngu- ferð um bæinn með viðkomu í skólasafni Björg- vinjar. Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðu sambands- ins, www.samband.is. Jönköping biður um vinabæ Deild Norræna félagsins í Jönköping í Svíþjóð hefur leitað til vinabæjanefndar Norræna félagsins með beiðni um að reynt verði að finna Jönköping vinabæ á Islandi. Bærinn Jönköping er í vinabæja- keðju með Svendborg í Danmörku, Bodö í Noregi og Kuopio í Finnlandi og vill fá sveitarfélag á ís- landi með í keðjuna. Jönköping er í Smálöndum við suðurenda Váttern, mitt á milli Stokkhólms og Kaupmannahafnar, og telur 150 þúsund íbúa með úthverfum. Bærinn var á árum áður kunnur fyrir eldspýtnaframleiðslu og nú fyrir smáiðnað og sem skólabær. Þar er vaxandi háskóli þar sem eru í samstarfi fjórir skólar, verslunarháskóli. kennara- háskóli, verkfræðiháskóli og hjúkrunarháskóli, og áhersla lögð á að veita viðtöku skiptinemum og að greiða götu þeirra. Boðin er aðstoð við að útvega námsmanni húsnæði og námslán/laun á sænskum kjörum. Þar eru nægilega margir íslendingar til þess að unnt sé að halda uppi félagslífi. Milligöngu um þessa beiðni hafði Margrét Hann- esdóttur Borg, sem á sæti í stjórn deildar Norræna félagsins í Jönköping. Heimilisfang hennar er Söderásvágen 11, 56230 Norrahammar. Einnig veitir Esther Sigurðardóttir á skrifstofu Norræna félagsins í Reykjavík, síma 551 0165, nánari upplýsingar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.